Innlent

Óvissustig í gildi og margir vegir lokaðir

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Mikill kuldi er víðs vegar um landið þessi jólin. 
Mikill kuldi er víðs vegar um landið þessi jólin.  Vísir/Vilhelm

Veðurstofa Íslands lýsti í gær yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðanverðum Vestfjörðum. Óvissustigið tók gildi á miðnætti.

Appelsínugul viðvörum er nú í gildi á Vestfjörðum. Þá er gul viðvörun nú í gildi á norðurlandi vestra, Ströndum, Vestfjörðum, Suðurlandi og Faxaflóa í gildi.

Á vef Veðurstofunnar segir að spáð sé talsverðri eða mikilli snjókomu og éljagangi með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Búist sé við mjög hvössum og varhugaverðum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 metra á sekúndu. 

Í tilkynningu á Facebook síðu Almannavarna segir að samgöngutruflanir séu líklegar og ekkert ferðaveður meðan viðvörunin er í gildi. 

Í gærkvöldi aðstoðaði björgunarsveit af Snæfellsnesi farþega tveggja rúta sem fuku út af Útnesvegi utarlega á Snæfellsnesi. Auk þess aðstoðuðu björgunarsveitir austan Hellisheiða fimm bílstjóra sem höfðu fest bíla sína á heiðinni.

Á vef Vegagerðarinnar má sjá að nær allir vegir á Vestfjörðum eru ófærir. Þá eru Holtavörðuheiði, Brattabrekka og Snæfellsvegur um Staðarsveit meðal annars lokaðir. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×