Ísold Klara Felixdóttir var valið Íþróttakvár Reykjavíkur 2023. Ísold átti frábært ár en hán er landsliðskvár í karate, fékk svarta beltið og náði silfur og brons á Smáþjóðamóti Evrópu í ár.
Andrea Kolbeinsdóttir er Íþróttakona Reykjavíkur 2023. Andrea átti flott ár en hún gerði sér lítið fyrir og vann öll þau hlaup á árinu sem hún tók þátt í. Meðal þeirra hlaupa sem hún vann voru Laugavegshlaupið og Reykjavíkurmaraþonið. Andrea var að vinna þessi verðlaun annað árið í röð.
Andrea var ekki eingöngu sigursæl á hlaupabrautinni en hún varð einnig Íslandsmeistari í skíðagöngu í tveimur greinum, 5km göngu með hefðbundinni aðferð og í liðakeppni, en einnig fékk hún tvö silfur í sprettgöngu og 10km göngu með frjálsri aðferð.
Haraldur Franklín Magnús er Íþróttakarl Reykjavíkur 2023. Haraldur Franklín átti flott ár en hann lék á þrettán mótum á Áskorendamótaröð Evrópu. Meðal annarra afreka árinu hjá Haraldi má telja upp að hann tók þátt í lokaúrtökumóti fyrir The Open og komst í lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröðina.
Haraldur endaði í 127. sæti á Áskorendamótaröðinni og vann sér inn þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni á næsta ári.
Íþróttafólkið sem var tilnefnt til Íþróttafólk Reykjavíkur árið 2023 var eftirtalið:
- Andrea Kolbeinsdóttir - Frjálsar - ÍR
- Erna Sóley Gunnarsdóttir - Frjálsar - ÍR
- Eygló Fanndal Sturludóttir - Ólympískar lyftingar - Lyftingarfélag Reykjavíkur
- Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir - Skíði - Ármann
- Ísold Klara Felixdóttir - Karate - Fylkir
- Birnir Snær Ingason - Fótbolti - Víkingur
- Guðni Valur Guðnason - Frjálsar - ÍR
- Haraldur Franklín Magnús - Golf - GR
- Teitur Árnason - Hestar - Fákur
Íþróttalið Reykjavíkur er karlaliðs Víkings í knattspyrnu. Víkingur átti frábært tímabil og er Íslands- og bikarmeistari 2023. Víkings-liðið sigraði því allt sem hægt var að sigra á árinu. Liðið setti bæði stiga- og markamet efstu deildar karla í knattspyrnu.
Auk Víkingsliðsins voru tilnefnd kvennalið Víkings í knattspyrnu, kvennalið Vals í knattspyrnu og karlalið SR í íshokkí.