Menning

Húmorinn um of­beldi og kúgun „beittasta verk­færið í bar­áttunni“

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Guðrún Jónsdóttir yngri og Kristín Ástgeirsdóttir eru sammála um að húmorinn geti skipt miklu máli í jafnréttisbaráttu kvenna. 
Guðrún Jónsdóttir yngri og Kristín Ástgeirsdóttir eru sammála um að húmorinn geti skipt miklu máli í jafnréttisbaráttu kvenna.  Vísir

Málþing til heiðurs baráttukonunnar Guðrúnar Jónsdóttur fór fram seinni partinn í dag. Tilefnið er útgáfa ævi- og baráttusögu hennar Ég verð aldrei frú meðfærileg eftir Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur. 

Fréttamaður Stöðvar 2 leit við á málþinginu og náði tali af Guðrúnu Jónsdóttur yngri, fyrrverandi talskonu Stígamóta, og Kristínu Ástgeirsdóttur fyrrverandi þingkonu Kvennalistans. 

Guðrún lýsir nöfnu sinni sem stórbrotnum persónuleika sem hafi orðið sérfræðingur í starfsaðgerðun nýju kvennahreyfinganna. „Hún hafði tileinkað sér hina nýju hugsun og hinar nýju aðferðir og varð snillingur í að gera grín að hinu grafalvarlega ofbeldi og þeirri grafalvarlegu kúgun sem konur voru beittar og það gat verið beittasta verkfærið í baráttunni,“ segir Guðrún. 

„Hún er snillingur í að virkja grasrótina, óhrædd, eldklár, skrifaði doktorsritgerðina sína um kynferðisofbeldi þannig að það var ákaflega vel vandað til verka við tilurð Stígamóta. Mig langar bara að segja að ég er svo þakklát fyrir að sagan hennar sé komin á bók vegna þess að mér finnst að sagan hennar Guðrúnar sé saga okkar allra,“ bætir Guðrún við .

Óraði ykkur fyrir því að það yrði svona vel sótt?

„Já, ég verð nú að segja það,“ segir Kristín. „Guðrún er mjög vel þekkt í kvennahreyfingunni og hún hefur náttúrlega stundað mikinn aktívisma og komið víða við sögu. Þannig að það eru mjög margir sem hafa unnið með henni í gegn um tíðina enda er þetta orðinn langur ferill og hennar framlag mjög merkilegt,“ segir hún jafnframt. 

„Og eins og hún segir sjálf, að húmorinn skiptir miklu máli og hann getur vakið mikla athygli,“ segir Kirstín og rifjar upp þegar fegurðarsamkeppnum var mótmælt í borgarstjórninni og Guðrún mætti ásamt Magdalenu Schram í kjól og með kórónu á borgarstjórnarfund.

„Þannig að hún sem aktívisti á sér langa og merkilega sögu,“ segir Kristín að lokum. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×