Sport

Fölsuðu leiki til að fá aukið fjár­magn frá Al­þjóða­sam­bandinu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Krikket er ekki eins vinsælt í Frakklandi og hefur verið haldið fram
Krikket er ekki eins vinsælt í Frakklandi og hefur verið haldið fram

Franska krikketsambandið liggur undir grun að hafa falsað leikjafjölda kvennaliða sambandsins til að auka fjárveitingar Alþjóðakrikketsambandsins til sín. Leikmenn, félög og fleiri meðlimir hafa stigið fram og ásakað sambandið um ólögmæta starfshætti. 

Heimsmeistaramótið í krikket fer fram þessa dagana í Indlandi. Mithali Raj, stigahæsti leikmaður íþróttarinnar frá upphafi, var viðstaddur viðburð í París síðastliðinn ágúst þar sem fagnað var góðum uppgangi íþróttarinnar í Frakklandi, sem hefur enga sögulega tengingu við krikket. 

Franska krikketsambandið hélt því fram með stolti á viðburðinum að 25% allra krikketleikmanna landsins væru kvenkyns og 91 leikur hafi farið fram í kvennaflokki árið áður. En nú hefur komið á daginn að þær tölur eru líklega mjög ýktar. 

Fyrrum landsliðsmaðurinn Tracy Rodriguez tók stöðu í stjórn sambandsins í júní 2021, hún sagði spurningar strax hafa vaknað sem aðrir meðlimir hafi einfaldlega hlegið að. Hún fór þá að nýta frítíma sinn í að rannsaka málið sjálf og sótti krikketleiki sem áttu að fara fram. 

Í nokkur skipti fór hún í garðinn og fann engan þar, daginn eftir voru úrslit leiksins svo birt á netinu. Franski fjölmiðillin, France24, ákvað að slást til liðs við Rodriguez í rannsóknarvinnunni og fór á stúfana. Þeir komust að sömu niðurstöðu, enginn leikur fór fram. 

Fulltrúar liðanna sem áttu þar að leika voru spurðir út í málið, annað liðið sagði leikinn hafa farið fram síðar sama dag, hitt liðið sagði leikinn hafa verið færðan á annan völl og farið fram á réttum tíma. Franska krikketsambandið hafði svo sambandið við fjölmiðilinn og bað um að ekki yrði haft samband beint við fulltrúa liðanna. 

Lögum um fjárveitingar innan franska krikketsambandsins var breytt árið 2021, þær eru nú aðeins veittar til liðanna á grundvelli þess að þau haldi úti ungmenna- og kvennaliði. Mörg topplið hafa því gripið til þeirra ráða að falsa, ekki bara leiki, heldur heilu liðin. 

Frakkland leikur á heimsmeistaramótinu í krikket þessa dagana, skilyrði fyrir því að taka þátt í mótinu er að hafa að minnsta kosti átta starfrækt kvennalið í landinu, Sport24 hefur staðfest tilveru fjögurra en ekki fleiri. Alþjóðakrikketsambandið sagðist ekki geta dæmt í málinu heldur þyrftu þau að treysta því að upplýsingar Frakklands væru réttar. 

Franska krikketsambandið hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×