Menning

„Varð að treysta því að það sem ég elskaði að gera væri nóg“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listræni förðunarfræðingurinn Sunna Björk Erlingsdóttir er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.
Listræni förðunarfræðingurinn Sunna Björk Erlingsdóttir er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Vísir/Vilhelm

„Ég hef ekki litið til baka í eina sekúndu,“ segir listræni förðunarfræðingurinn Sunna Björk Erlingsdóttir sem ákvað að leggja allt í listsköpunina og treysta því að það færi með hana í rétta átt.

Sunna Björk á að baki sér viðburðaríkan feril sem er þó rétt að byrja. Hún hefur gjarnan verið að farða íslensku stórstjörnuna Björk Guðmundsdóttur, hefur ferðast víða fyrir fjölbreytt verkefni og unnið fyrir stór tískutímarit á borð við breska og pólska Vogue svo eitthvað sé nefnt. Sunna Björk er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Hér má sjá viðtalið við Sunnu í heild sinni:

Klippa: KÚNST - Sunna Björk Erlingsdóttir

Sunna Björk stundaði nám við Listfræði í Háskóla Íslands sem hún segir hafa verið mjög skemmtilegt og fræðandi. Ásamt því hafi námið dýpkað listræna sýn hennar á förðuninni. Hún hafi þó alltaf fundið ákveðið öryggi í því að vera í skóla en hún man eftir augnablikinu þar sem hún ákvað að hætta.

„Tækifærin voru allt í einu orðin svo mörg að ég þurfti að velja. Ég gat ekki lengur verið með annan fótinn út og ég varð svolítið að treysta því að það sem ég elskaði að gera væri bara nóg. 

Ég þyrfti kannski ekkert að leitast eftir akademískri gráðu til að fá einhverja viðurkenningu eða staðfestingu á mér.“
Sunna Björk hefur unnið í fjölbreyttum verkefnum og hefur gaman að því að vinna í tónlistar- og tískuheiminum. Þá sinnir hún einnig förðunarkennslu sem hún segir mjög gefandi.Vísir/Vilhelm

Í kjölfarið fóru hin ýmsu verkefni að koma til Sunnu. 

„Þetta gerðist frekar náttúrulega allt, snjóboltinn var farinn að rúlla og tækifærin urðu fleiri. Ég hef ekki litið til baka í eina sekúndu. Ég trúi því varla að þetta sé það sem ég fæ að gera alla daga.“

Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.


Tengdar fréttir

Vildi klæðast ruslinu sínu

„Ég myndi segja að leikgleði einkenni listsköpun mína og hún er mjög litrík og umhverfisvæn,“ segir vöruhönnuðurinn og plötusnúðurinn Rebekka Ashley, sem finnur notagildi í nánast öllu í kringum sig og fer vistvænar leiðir í sinni listsköpun. Rebekka Ashley er viðmælandi í Kúnst.

Hlær bara að hrútskýringum

Fjöllistakonan Guðlaug Sóley, jafnan þekkt sem Gugusar, hefur náð miklum árangri sem tónlistarkona á undanförnum árum og meðal annars unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Hún byrjaði fimmtán ára gömul að semja tónlist og pródúsera sjálf en takmarkar sig ekki við einn listmiðil. Gugusar er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 

Flugu saman fram af hárugri bjarg­brún

„Okkur fannst bara mjög spennandi að vinna saman og við vissum strax að við ætluðum að vera með óvanalega sýningu. Maður finnur ákveðið traust til að hleypa einhverjum svona inn í sinn heim,“ segja Hrafnhildur Arnardóttir, jafnan þekkt sem Shoplifter, og Hrafnkell Sigurðsson, myndlistarmaður ársins 2022. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×