Víða er lagður mikill metnaður í skreytingar, búninga og veisluborð, án þess þó að það kosti skyldinginn.
Með nokkrum einföldum og hryllilegum uppskriftum má töfra fram hið glæsilegasta veisluborð í anda hátíðarinnar.
Hér að neðan má sjá einfaldar og skemmtilegar útfærslur af ýmsum réttum og veislubökkum sem hafa fengið óhugnanlegt yfirbragð.
Blóðugir afskornir fingur
Berðu fram pylsur í brauði sem hefur verið skorið í til að líkjast fingri og settu tómatsósu yfir sem blóð.

Pítsa með köngulóm
Litlar pítsur eru alltaf vinsælar hjá yngri kynslóðinni. Bakaðu eða keyptu tilbúnar pítsur og bættu við osti áleggi. Í lokin skerðu svartar ólífur til helminga og minni ræmur sem mynda fætur. Útkoman er svört könguló.

Blómkáls hauskúpa
Mótaðu blómkál eins og hauskúpu. Minnkaðu umfangið þar það líti sem mest út eins og andlit. Næst skerðu út göt fyrir augum, nefi og mótar fyrir tönnum.
Raðaðu því næst grænmeti í kringum hauskúpuna á stórum bakka og berðu fram með ljúffengri ídýfu!

Blóðlegur drykkur
Helltu sódavatni, djús eða öðrum drykk í stóra skál. Bættu þar næst við rauðu ávaxtaþykkni til þess að drykkurinn líkist blóði.
Að lokum er komið að því að skreyta drykkinn með frosnum höndum, gerviaugum eða köngulóm til dæmis.

Pylsu-múmía
Við gerð pylsu múmíunnar er hægt að nota grasker eða melónu sem höfuð.
Skerðu pylsur í minni bita og settu í þær tannstöngla. Þá er hægt að nota ólífur og hnetur til að mynda fyrir augum og tönnum.

Skrímsla-hamborgari
Breyttu hinum sígilda hamborgara í alvöru skrímslaborgara. Hryllilega einfalt og flott!

Ógnvekjandi partíbakkar
Partíbakkar slá iðulega í gegn á veisluborðinu. Hvort sem þeir eru ávaxta-, grænmetis-, osta- eða nammi bakkar. Hægt er að fara ýmsar leiðir líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum.





Ælandi grasker
Grasker er flott leið til að skreyta veisluborðið á einfaldan hátt. Skerið út andlit og munn í graskerið og látið matinn flæða út um munn þess, líkt og það sé að æla.
Hægt er að setja nammi, snakk eða annað sem huganum girnist.
