Fótbolti

Líf fót­bolta­mannsins sé ekkert eðli­legt: „Annað hvort ertu snillingur eða hálf­­viti“

Aron Guðmundsson skrifar
Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður Íslands í fótbolta og leikmaður KAS Eupen í Belgíu
Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður Íslands í fótbolta og leikmaður KAS Eupen í Belgíu Vísir

Alfreð Finnbogason, einn af reyndari leikmönnum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir mikilvægt fyrir yngri leikmenn liðsins að hafa reyndari leikmenn sér við hlið. Blandan í íslenska landsliðshópnum núna sé mjög góð hvað þetta varðar.

Íslenska landsliðið á fyrir höndum tvo heimaleiki í undankeppni EM 2024. Liðið tekur á móti Lúxemborg á Laugardalsvelli á morgun og á mánudaginn kemur mætir Liechtenstein á Laugardalsvöll.

Alfreð hefur verið að fóta sig á nýjum slóðum á yfirstandandi tímabili. Hann var seldur til belgíska úrvalsdeildarliðsins KAS Eupen í upphafi tímabils en hafði þar áður verið á mála hjá danska úrvalsdeildarfélaginu Lyngby.

„Það hefur gengið nokkuð vel,“ segir Alfreð aðspurður hvernig fyrstu mánuðirnir í Belgíu hafa verið. „Þetta er land sem ég hef búið í áður. Þó er ég núna í þýsku­mælandi hluta Belgíu. Þetta er því svo­lítið eins og að vera í Þýska­landi en það hjálpar mér bara. Að geta talað þýsku og þá er þjálfarinn okkar Þjóð­verji. Guð­laugur Victor, góð­vinur minn, er þarna líka. Það hefur því gengið mjög vel að koma sér þarna fyrir.“

Alfreð hefur fengið margar mínútur í leikjum KAS Eupen á tímabilinu.

„Ég er búinn að spila alveg hrika­lega mikið. Maður finnur að það fylgir því mikið álag að vera þarna. Ég er búinn að spila flest alla leiki liðsins í byrjunar­liðinu. Hef náð að skora og leggja upp mörk. Mér finnst ég hafa náð að byrja bara frekar vel þrátt fyrir að síðustu leikir hafi verið erfiðir fyrir liðið.

Við höfum fengið öll topp­lið deildarinnar á okkur í einni svipan og ekki nælt í sigur í síðustu leikjum. Þess vegna er fínt að koma núna í lands­liðið, fá vonandi já­kvæða strauma og nokkra sigur­leiki í þessari viku.“

Stóru fréttirnar fyrir komandi landsleiki Íslands eru vafalaust þær að Gylfi Þór Sigurðsson snýr aftur í íslenska landsliðið eftir tæplega þriggja ára fjarveru. Þá er landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson einnig mættur í landsliðið á nýjan leik. 

Alfreð er á því að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska landsliðið að vera með sína reynslumestu leikmenn í þessum landsliðsverkefnum.

„Þegar að maður var sjálfur yngri fattaði maður ekkert hvað þetta skiptir miklu máli. Svo eldist maður og sér menn í kringum sig að fara í gegnum ýmsa hluti á einum og sama fót­bolta­ferlinum.“

Ekki sé um neitt eðlilegt líf að ræða.

„Annað hvort ertu snillingur eða hálf­viti eftir hverja helgi. Þú þarft hins vegar, ein­hvern veginn, að halda þér svona nokkuð ró­legum. Þú ert ekki jafn góður og allir segja þegar að það gengur vel. Þú ert heldur ekki jafn lé­legur og allir segja þegar að það gengur illa.

Ég ætla að vona að við eldri leik­menn getum komið með á­kveðna ró inn í hópinn og því fleiri sem við erum því betra. Svo er það undir yngri leik­mönnum komið að vonandi geta lært eitt­hvað að­eins. Samt sem áður þurfum við jafn­mikið fram­lag frá eldri leik­mönnum eins og yngri leik­mönnum.“

Blandan hvað þetta varðar í íslenska landsliðinu sé orðin mjög góð. 

„Það kom tíma­bil hjá liðinu þar sem að þér var hent nokkuð fljótt ofan í djúpu laugina. En eins og þetta er núna er kannski eðli­legri þróun og breyting á liðinu. Við vitum að á endanum munu þessir yngri leik­menn taka yfir og það eru náttúru­lega margir hrika­lega efni­legir leik­menn undir 25 ára aldri hjá okkur.“

Viðtalið við Alfreð Finnbogason í heild sinni má sjá hér fyrir neðan: 

Klippa: Annað hvort ertu snillingur eða hálfviti



Fleiri fréttir

Sjá meira


×