Innlent

„Við þurfum að fara fram á að­hald í ríkis­rekstrinum“

Árni Sæberg skrifar
Bjarni með fjárlagafrumvarpið sitt.
Bjarni með fjárlagafrumvarpið sitt. Stöð 2/Sigurjón

Fjármála- og efnahagsráðherra segir það helsta í fjárlagafrumvarpinu vera sterka stöðu ríkissjóðs. Afkoma ríkissjóðs í fyrra og í ár hafi verið miklum mun betri en gert hafði verið ráð fyrir og að væntingar fyrir næsta ár séu góðar. Afkoma ríkissjóðs haldi áfram að batna.

„Við sjáum að skuldahlutföllin eru þar af leiðandi mjög heilbrigð og fara lækkandi. Þetta gerir okkur kleift að vera í stórum innviðafjárfestingum en við þurfum að fara fram á aðhald í ríkisrekstrinum en getum verið að byggja nýjan Landspítala, setjum fimmtíu milljarða í Landspítalann í ár og á næsta ári,“ segir Bjarni í samtali við fréttastofu að lokinni kynningu á fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2024.

Þá segir hann að áform séu uppi um að byggja upp samgöngukerfið, styðja við íbúðabyggingu og styðja áfram við við rannsóknir og þróunarstarf, meðal annars.

Jákvæð teikn á lofti en áskoranir fram undan

Bjarni segir að mörg jákvæð teikn séu á lofti í ríkisrekstrinum, það sé mikill hagvöxtur og störfum hafi fjölgað gríðarlega mikið. Þó séu áfram áskoranir fram undan þar sem verðbólgan sé enn tiltölulega há þótt hún hafi lækkað undanfarið.

„Þess vegna þarf að halda þétt utan um stöðuna til að sjá framhald á þeirri þróun. Það mun skapa skilyrði fyrir lægri vöxtum og þá getum við sótt fram á þeim nýja grundvelli. Við erum að ná andanum eftir gríðarlega mikla sókn undanfarin ár.“

Fjárlagafrumvarp næsta árs er nú aðgengilegt.Stöð 2/Sigurjón

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir tæplega 56 milljarða króna halla á venjulegum rekstri ríkisins en hátt í 35 milljarða króna afgangi sé vaxtakostnaður tekinn út fyrir sviga.

Taka ekki út aukin umsvif með útgjöldum

Bjarni segir það helst útskýra bætta afkomu ríkissjóðs að aukin efnahagsumsvif hafi skilað sér beint inn í ríkissjóð, þau hafi ekki verið tekin strax út með aukningu útgjalda.

„Við höfum verið með nokkuð varfærnar áætlanir en síðan höfum við líka farið fram úr spám í ýmsu tilliti. Það hefur verið töluvert mikil einkaneysla, mikill fjöldi ferðamanna og neysla þeirra hefur verið töluvert mikil. Þetta eru þættir sem hafa mikil áhrif, virðisaukaskatturinn skilar meiru þegar er svona mikill hagvöxtur.“

Gera ráð fyrir talsverðu aðhaldi 

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir töluverðu aðhaldi í ríkisrekstrinum á næsta ári. 

„Við horfum þannig á stöðuna að þetta geti í fyrsta lagi þýtt það að verði ekki ráðið aftur í stöður sem losna. Í einhverjum tilvikum geti þurft að fækka fólki. Við teljum að það séu aðstæður til þess í dag vegna þess að ástandið á vinnumarkaði er mjög gott. Það er mjög mikil eftirspurn eftir vinnuafli á Íslandi og stjórnendur flestir telja að þeir verði í vandræðum með að ráða í þær stöður sem þeir vilja í í einkageiranum.“

Þá segir hann að farið sé fram á það að tæknibreytingar skili sér í meiri skilvirkni og hagkvæmni í opinberum rekstri með sama hætti og þær gera í heimilisrekstrinum og í atvinnulífinu almennt.


Tengdar fréttir

Á­fengis-og tóbaks­gjöld hækka

Lagt verður til að áfengis- og tóbaksgjald hækki um 3,5 prósent í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2024. 

Gert ráð fyrir aukinni gjald­töku af raf­bílum

Gert er ráð fyrir aukinni gjald­töku af raf­bílum í nýju fjár­laga­frum­varpi. Inn­leitt verður nýtt tekju­öflunar­kerfi í tveimur á­föngum. Fjár­mála­ráð­herra segir ríkið hafa gefið of mikið eftir af heildar­tekjum vegna raf­bíla. Áfram verði hagkvæmara að eiga rafbíl.

Gisti­n­átta­skattur á skemmti­­ferða­­skip í fyrsta sinn

Gisti­n­átta­skattur sem felldur var niður á tímum heims­far­aldurs verður tekinn aftur upp um ára­mót. Þá mun hann einnig leggjast á skemmti­ferða­skip, í fyrsta sinn. Á­ætlað er að hann skili 1,5 milljarði króna í þjóðar­búið.

Á­herslur taka mið af verð­bólgu, að­haldi og for­gangs­röðun

Fjárlagafrumvarpið fyrir 2024 hefur verið kynnt. Áherslur þess taka mið af talsverðri spennu sem haldist hefur í hendur við mikinn slátt í hagkerfinu og birtist fylgisfiskur þess meðal annars í verðbólgu. Stutt verður við heimili samhliða áherslu á aðhald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×