Fótbolti

Hvaða leik­menn gæti Sádi-Arabía reynt að lokka til sín fyrir glugga­lok?

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir þrír gætu endað í Sádi-Arabíu að mati ESPN.
Þessir þrír gætu endað í Sádi-Arabíu að mati ESPN. EPA PHOTO

Félagaskiptaglugginn í Sádi-Arabíu lokar á fimmtudag. Knattspyrnufélög þar í landi geta því enn sótt leikmenn þó glugginn í stærstu deildum Evrópu sé nú lokaður.

Að því tilefni tók ESPN saman nokkur af helstu nöfnunum sem eru orðuð við Sádi-Arabíu um þessar mundir og velti fyrir sér hvort eitthvað af þeim nöfnum gætu fært sig um set áður en glugginn þar í landi lokar.

Mohamed Salah, 31 árs framherji

Egyptinn hefur verið orðaður við Sádi-Arabíu undanfarna daga en Liverpool neitar að selja þó svo að tilboðið hljóði upp á gull og græna skóga. Þá myndi Salah fá einkar vel borgað í Sádi-Arabíu.

David De Gea, 32 ára markvörður

Samningur De Gea við Manchester United rann út í sumar og hann er enn samningslaus. Er enn á góðum aldri fyrir markvörð og þrátt fyrir að hafa verið óstöðugur á síðustu leiktíð ætti hann að vera töluvert betri en meðalmarkvörðurinn í Sádi-Arabíu. ESPN segir hann passa fullkomlega í lið eins og Al Nassr eða Al Ittihad.

Roberto Pereyra, 32 ára miðjumaður

Fjölhæfur miðjumaður sem virðist sama hvar hann spilar. Hefur á undanfarinn áratug spilað fyrir Juventus, Watford og Udinese. Ólst upp hjá River Plate í Argentínu og nú er kominn tími til að færa sig út fyrir Evrópu.

Hugo Lloris, 36 ára gamall markvörður

Hugo Lloris gæti farið til Sádi-Arabíu að mati ESPN.Getty Images/Aurelien Meunier

Samningsbundinn Tottenham Hotspur til sumarsins 2024 en ljóst er að tími hans hjá félaginu er liðinn. Var orðaður við lið á borð við Marseille, Nice og Lazio í sumar en nú er það einfaldlega Sádi-Arabía eða einfaldlega varaliðið hjá Tottenham.

Donny van de Beek, 26 ára gamall miðjumaður

Hollendingurinn var ekki hluti af Meistaradeildarhóp Man United og er að öllum líkindum á leið frá félaginu. Hefur verið óheppinn með meiðsli og þó svo að Man Utd sé þunnskipað á miðsvæðinu virðist Erik ten Hag ekki treysta Donny til að spila þar.

Paul Poga, 30 ára gamall miðjumaður

Paul Pogba hefur verið meiddur nærri allan tímann síðan hann sneri aftur til Juventus.Jonathan Moscrop/Getty Images

Endurkoma Pogba til Juventus hefur verið hrein og bein hörmung. Er enn á ný að glíma við meiðsli og alls óvíst hversu mikið hann mun spila á næstunni. Juventus er eflaust til í að losna við hann af launaskrá og í Sádi-Arabíu gæti hann jafnvel hækkað í launum.

Önnur nöfn á listanum eru João Palhinha, Marco Veratti, Eden Hazard, Jesse Lingard og Malang Sarr.

Þá er Demarai Gray, leikmaður Everton, við það að ganga í raðir Al Ettifaq. Gray var ekki á listanum hjá ESPN en það virðist næsta öruggt að leikmaðurinn gangi til liðs við Steven Gerrard og lærisveina hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×