Fótbolti

Benzema meiddur af velli og Al Hilal lagði læri­sveina Gerrard þó Neymar hafi vantað

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Al Hilal hefur ekki enn tapað leik.
Al Hilal hefur ekki enn tapað leik. Al Hilal

Franski framherjinn Karim Benzema haltraði meiddur af velli þegar lið hans Al-Ittihad lagði Al Wehda 3-0 í efstu deild Sádi-Arabíu í gærkvöld, mánudag. Lærisveinar Steven Gerrard í Al Ettifaq töpuðu þá sínum fyrsta leik í deildinni gegn Al-Hilal.

Hinn 35 ára gamli Benzema fór meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks, ekki er komið í ljós hversu alvarleg meiðslin eru eða hversu lengi Frakkinn verður frá keppni. Í hans stað kom Portúgalinn Jota inn af bekknum. Sá vill losna frá Al Ittihad þrátt fyrir að ganga í raðir félagsins í sumar.

Hvað leikinn varðar þá var staðan markalaus í hálfleik en í þeim síðari tóku gestirnir yfir. Romarinho skoraði eftir undirbúning N´Golo Kanté á 63. mínútu og fjórum mínútum síðar bætti varamaðurinn Jota við marki eftir sendingu frá Igor Coronado.

Það var svo Coronado sem gulltryggði sigurinn með marki á 73. mínútu eftir stoðsendingu frá Romarinho. Lokatölur 3-0 Al Ittihad í vil.

Þó Neymar sé ekki enn mættur til Al Hilal þá hafði það engin áhrif á leik liðsins gegn lærisveinum Steven Gerrard. Brasilíumaðurinn Malcom heldur áfram að leika listir sínar og hann kom Al Hilal yfir á 24. mínútu eftir undirbúnings serbneska framherjans Aleksandar Mitrović.

Heimamaðurinn Salem Al Dawsari gekk svo frá leiknum undir lok fyrri hálfleiks, staðan 2-0 í hálfleik og reyndust það lokatölur.

Það verður forvitnilegt að sjá hvar Al Hilal mun stilla Neymar upp en Malcom hefur byrjað tímabilið af krafti í „holunni“ á bakvið framherjann.

Færa má rök fyrir því að Al Hilal sé sterkasta lið landsins með Bono, landsliðsmarkvörð Marokkó í markinu, Kalidou Koulibaly í miðverði, Rúben Neves og Sergej Milinković-Savić á miðjunni ásamt því að vera með Malcom og Neymar á bakvið framherjann Mitrović.

Að því sögðu er Al Ittihad á toppnum með fullt hús stiga að loknum 4 umferðum en Al Hilal í 2. sæti með 10 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×