Fótbolti

Neymar segist vilja endur­skrifa í­þrótta­söguna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Neymar er mættur til Al-Hilal í sádiarabísku deildinni frá PSG til að endurskrifa íþróttasöguna.
Neymar er mættur til Al-Hilal í sádiarabísku deildinni frá PSG til að endurskrifa íþróttasöguna. Jean Catuffe/Getty Images

Brasilíska stórstjarnan Neymar gekk í gær í raðir sádiarabíska liðsins Al-Hilal frá franska stórveldinu Paris Saint-Germain. Hann segist vilja prófa sig fyrir utan Evrópu og um leið eiga þátt í því að endurskrifa íþróttasöguna.

Al-Hilal greiðir um níutíu milljónir evra fyrir Neymar, en það samsvarar um þrettán milljörðum króna. Það er þó ekki kaupverðið sem vekur mesta athygli við samning leikmannsins við liðið, heldur eru það launin og fríðindin sem fylgja þeim.

Neymar segist þó ekki vera að þessu fyrir peningana og fríðindin. Hann hafi einfaldlega viljað prófa sig fyrir utan Evrópu og finna sér nýja áskorun.

„Ég er búinn að afreka mikið í Evrópu og hef notið tímans hér, en ég hef alltaf viljað vera alþjóðlegur leikmaður og prófa mig með nýjum áskorunum og tækifærum á nýjum stöðum,“ sagði Neymar.

Neymar, sem er 31 árs gamall, varð árið 2017 dýrasti leikmaður heims þegar PSG festi kaup á honum frá Barcelona. Parísarliðið greiddi þá um 220 milljónir evra fyrir leikmanninn. Neymar virðist þó ekki lengur vera inni í myndinni hjá PSG og var hann ekki í hóp þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Lorient í fyrstu umferð frönsku úrvalsdeildarinnar síðustu helgi.

„Ég vil endurskrifa íþróttasöguna og sádiarabíska deildin býr yfir mikilli orku og frábærum leikmönnum á þessum tímabunkti,“ bætti Neymar við.

„Ég er búinn að heyra mikið og hef komist að því að ég er að fylgja í fótspor margra brasilískra leikmanna sem hafa spilað í Sádi-Arabíu í gegnum árin, þannig að ég hef trú á því að ég sé kominn á réttan stað,“ sagði Neymar að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×