Fótbolti

Totten­ham landaði hollenska varnar­manninum

Sindri Sverrisson skrifar
Micky van de Ven skrifaði undir samning til sex ára við Tottenham.
Micky van de Ven skrifaði undir samning til sex ára við Tottenham. tottenhamhotspur.com

Enska knattspyrnufélagið Tottenham tilkynnti í dag um kaupin á hollenska varnarmanninum Micky van de Ven sem félagið fær frá þýska félaginu Wolfsburg.

Kaupverðið nemur um 43 milljónum punda að meðtöldum bónusgreiðslum, samkvæmt frétt The Athletic.

Samningur þessa 22 ára gamla leikmanns við Tottenham gildir til næstu sex ára. Hann var fyrirliði hollenska U21-landsliðsins á EM í Georgíu. Hann hefur verið valinn í A-landsliðshóp Hollands, fyrir leiki í undankeppni HM, en ekki spilað fyrir liðið enn sem komið er.

Van de Ven lék í tvö tímabil eð Wolfsburg en er uppalinn hjá Volendam í heimalandi sínu og hóf þar meistaraflokksferilinn og spilaði í næsefstu deild Hollands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×