Sport

„Börn“ Anníe Mistar og Katrínar Tönju í sviðs­ljósinu á skráningar­deginum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frederik Ægidius, Freyja Mist Frederiksdóttir og Anníe Mist Þórisdóttir brugðu á leik.
Frederik Ægidius, Freyja Mist Frederiksdóttir og Anníe Mist Þórisdóttir brugðu á leik. Instagram/@anniethorisdottir

Heimsleikarnir í CrossFit hefjast í dag með keppni í aldursflokkum og hjá fötluðum en keppnin um heimsmeistaratitil karla og kvenna hefst ekki fyrr á fimmtudaginn.

Keppendur skráðu sig til leiks í gær og staðfestu komu sína til Madison. Keppendur fóru þá einnig í alls konar myndatöku og fengu afhentan keppnisklæðnað sinn á mótinu.

Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru tvær af reynslumestu keppendum mótsins enda Anníe Mist á sínum þrettándu leikum og Katrín Tanja á sínum tíundu. Þær eru líka einu konurnar í keppninni í ár sem hafa orðið heimsmeistarar.

Það má segja að börn þeirra beggja hafi fengið að deila með þeim sviðsljósinu á skráningardeginum því báðar eru þær auðvitað með alla fjölskyldu sína með.

Anníe Mist var með manninn sinn Frederik Ægidius og að verða þriggja ára dóttur sína Freyju Mist sem brosti út að eyrum á flestum myndum. Það væri gaman að sjá hana feta þessa slóð í framtíðinni og þá eru þessar myndir gulls ígildi.

Katrín Tanja var aftur á móti með kærasta sinn Brooks Laich og báða hundana þeirra. Theo, hundurinn hennar Katrínar hefur vakið mikla lukku ekki síst þegar hann er að taka þátt í æfingunum með henni.

Freyja Mist fékk meðal annars ljón að gjöf sem gæti jafnvel sloppið sem tuskudúkka af Theo í augum einhverja.

Það þarf ekki að koma á óvart að okkar konur hafi vakið mesta athygli ljósmyndara CrossFit samtakanna sem birtu fyrst myndir af fjölskyldum íslensku CrossFit stjarnanna áður en þeir syndu aðra eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×