Fótbolti

Dóttir Ronaldos í Liverpool-treyju

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ekki er vitað hvort Cristiano Ronaldo var svona ósáttur við að sjá dóttur sína í Liverpool-treyju.
Ekki er vitað hvort Cristiano Ronaldo var svona ósáttur við að sjá dóttur sína í Liverpool-treyju. vísir/hulda margrét

Dóttir Cristianos Ronaldo sást í Liverpool-treyju merktri Mohamed Salah.

Ronaldo-fjölskyldan er í fríi og eiginkona hans, Georgina Rodríguez, hefur verið dugleg að birta myndir úr því.

Á einni myndinni sáust börn Ronaldos á hárgreiðslustofu. Athygli vakti að ein dóttir Ronaldos, Alina Martina, var í Liverpool-treyju með nafni Salahs og númerinu ellefu aftan á.

Stuðningsmönnum Manchester United hefur eflaust brugðið í brún að sjá dóttur Ronaldos í Liverpool-treyju enda er pabbinn einn besti leikmaður í sögu United. Ronaldo lék alls 346 leiki fyrir United á árunum 2003-09 og 2021-22 og skoraði 145 mörk.

Ronaldo hætti hjá United um síðustu áramót og gekk í raðir Al Nassr í Sádi-Arabíu. Síðan hafa fjölmargir öflugir leikmenn farið til Sádi-Arabíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×