Fótbolti

Sonur Kims Kardashian hitti Ronaldo

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Saint Kardashian sáttur með Cristiano Ronaldo.
Saint Kardashian sáttur með Cristiano Ronaldo.

Sonur raunveruleikastjörnunnar og athafnakonunnar Kims Kardashian er eflaust í skýjunum eftir að hann fékk að hitta Cristiano Ronaldo.

Kardashian og sjö ára sonur hennar, Saint, voru á vellinum þegar Al-Nassr, sem Ronaldo leikur með, mætti Paris Saint-Germain í æfingaleik í Japan í fyrradag.

Ronaldo spilaði fyrstu 65 mínúturnar í leiknum sem endaði með markalausu jafntefli.

Eftir leikinn rættist draumur Saints þegar hann hitti Ronaldo í búningsklefanum ásamt vini sínum. Þeir tóku meðal annars Siuuu fagnið fræga sem er einkennisfagn Ronaldos.

Á föstudaginn voru Kardashian-mæðginin svo í stúkunni þegar Lionel Messi lék sinn fyrsta leik fyrir Inter Miami. Argentínumaðurinn tryggði bandaríska liðinu þá sigur á Cruz Azul frá Mexíkó með marki beint úr aukaspyrnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×