Sport

Jordan Henderson keyptur á tólf milljónir punda

Andri Már Eggertsson skrifar
Steven Gerrard hefur náð í Jordan Henderson
Steven Gerrard hefur náð í Jordan Henderson Vísir/Getty

Al Ettifaq hefur gengið frá kaupum á Jordan Henderson. Kaupverðið er tólf milljónir punda. Jordan Henderson lék 360 leiki með Liverpool þar sem hann vann ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina.

Jordan Henderson hefur lokið að hluta til læknisskoðun hjá Al Ettifaq en Henderson mun síðan klára alla læknisskoðunina í tæka tíð. Jordan Henderson skrifar undir þriggja ára samning við Al Ettifaq. 

 

Jordan Henderson kveður Liverpool sem goðsögn en hann hefur verið fyrirliði félagsins frá því að Steven Gerrard hætti árið 2015. Henderson lék 360 leiki fyrir Liverpool og skoraði 29 mörk.

Sem fyrirliði vann Henderson ensku úrvalsdeildina með Liverpool árið 2020, meistaradeildina árið 2019 og báðar ensku bikarkeppnirnar

Jordan Henderson mun hækka umtalsvert í launum en talið er að hann muni vera með 700 þússund pund á vika hjá Al Ettifaq.

Þjálfari Al Ettifaq er Steven Gerrard en þeir léku saman með Liverpool frá 2011 til 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×