Erlent

Fjórði ráð­herrann í ríkis­stjórn Støre segir af sér

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Ríkisstjórn Noregs við stjórnarskipti i nóvember 2021. Fjórir ráðherrar stjórnarinnar hafa nú sagt af sér.
Ríkisstjórn Noregs við stjórnarskipti i nóvember 2021. Fjórir ráðherrar stjórnarinnar hafa nú sagt af sér. EPA

Ola Borten Moe, vísinda- og háskólamálaráðherra Noregs og varaformaður Miðflokksins í Noregi, hefur sagt af sér vegna brots á verklagsreglum norsku ríkisstjórnarinnar. Moe er nú fjórði ráðherrann í tiltölulega nýrri ríkisstjórn Noregs til þess að segja af sér. 

Moe sagði af sér á blaðamannafundi sem fram fór fyrir skömmu.

NRK greindi frá hneyksli Moes fyrr í dag. Þar segir að í janúar hafi Moe setið á ríkisstjórnarfundi þar sem ákveðið var að semja við vopnaframleiðandann Nammo um kaup ríkisins á búnaði fyrir marga milljarða dollara. Vikuna áður hafði Moe keypt hlut í fyrirtækinu Kongsberg Gruppen, sem á fjórðungshlut í Nammo. 

Þá braut ráðherrann að auki reglur þegar hann sat ríkisstjórnarfund síðastliðinn 30. mars þegar ákveðið var að stækka umfang samningsins við Nammo. Telst hann hafa verið vanhæfur til þess að koma að þeirri ákvörðun vegna hagsmuna hans.

Baðst fyrirgefningar

Moe gekkst við því að hafa í tvígang brotið verklagsreglur. „Þetta er rosalega vandræðalegt mál og alvarlegt. Þetta þýðir að heilindi mín sem ráðherra geta verið dregin í efa. Þetta eru aðstæður sem ég hefði mjög vel viljað komast hjá og ég biðst innilegrar fyrirgefningar,“ sagði ráðherrann í samtali við NRK. 

Ráðherrann er nú sá fjórði í ríkisstjórn Jonasar Gahr Støre sem segir af sér síðan ríkisstjórnin var sett saman í nóvember árið 2021.

Kunnuglegt stef

Tæpur mánuður er síðan Anette Trettebergstuen, menningar- og jafnréttisráðherra Noregs, sagði af sér eftir að upp komst að hún hafði skipað vini og fyrrverandi flokkssystkini í stjórnir stofnana ríkisins. Í sömu viku baðst Tonje Brenna, menntamálaráðherra Noregs, afsökunar fyrir að hafa veitt góðvini sínum stjórnarsæti hjá ríkisstofnun.

Þá sagði Hadia Tajik, þáverandi vinnumálaráðherra, af sér í mars í fyrra þegar í ljós kom að hún hafði misnotað íbúðafríðindi ráðherra. Mánuði síðar sagði Odd Roger Enok­sen, þáverandi varnarmálaráðherra af sér þegar upp komst að hann hafi átt í kynferðislegu sambandi með átján ára stelpu árið 2005, þegar Enoksen var sjálfur fimmtugur. 

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×