Fótbolti

Blikar sækja Shamrock Rovers heim

Hjörvar Ólafsson skrifar
Blikar spila fyrri leikinn í Dublin í kvöld. 
Blikar spila fyrri leikinn í Dublin í kvöld.  Vísir/Hulda Margrét

Breiðablik leikur fyrri leik sinn við írska liðið Shamrock Rovers í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla á Tallaght leikvangnum í Dublin í kvöld. Leikur liðanna verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en útsending hefst klukkan 18.35. 

Eftir smá hikst síðustu vikurnar tóku leikmenn Breiðabliks gott veganesti með sér til Dublin með sannfærandi 5-1 sigri í Bestu-deildinni í síðasta leik sínum fyrir þennan mikilvæga leik. 

Þetta verður 30. Evrópuleikur Breiðabliks í sögunni en þetta er í annað skipti sem liðið tekur þátt í Meistaradeild Evrópu. 

Sigurliðið í þessari viðureign mun mæta Íslendingaliðinu FC Köbenhavn í næstu umferð undankeppninnar en seinni leikur Blika og Shamrock Rovers fer fram á Kópavogsvelli eftir slétta viku. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×