Erlent

Polar Prince komið til hafnar og rann­sókn á ör­lögum Titan hafin

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Nokkur mannfjöldi safnaðist saman við höfnina þegar Polar Prince lagði að og rannsakendur gengu um borð.
Nokkur mannfjöldi safnaðist saman við höfnina þegar Polar Prince lagði að og rannsakendur gengu um borð. AP/Adrian Wyld

Rannsakendur sáust ganga um borð í Polar Prince þegar skipið lagði að höfn í St. John's á Nýfundnalandi í dag. Skipið var stuðningsfley kafbátsins Titan, sem fórst á leið að flakinu af Titanic á sunnudag fyrir viku.

Rannsóknarteyminu er ætlað að varpa ljós á hvað varð til þess að kafbáturinn féll saman en á sama tíma og meðlimir þess gengu um borð í Polar Prince sáust farþegar skipsins ganga frá borði.

Greint hefur verið frá því að meðal þeirra hafi verið nokkrir fjölskyldumeðlimir þeirra fimm sem fórust í slysinu.

Einnig sást til annars skips í sömu höfn í dag sem virtist hafa pramman sem Titan kafaði frá í eftirdragi.

Polar Prince tók þátt í leitinni að kafbátnum eftir að samband við farið rofnaði um það bil einni klukkustund og 45 mínútum eftir að það hóf förina að flakinu.

Brot úr Titan fundust á sjávarbotni á fimmtudag, um 500 metrum frá Titanic.

Yfirvöld í Kanada tilkynntu á föstudag að rannsókn hefði verið hafin á slysinu, sem miðaði meðal annars að því að kanna öryggismál og, eins og fyrr segir, hvað fór úrskeðis.

Í kjölfar slyssins hafa nokkrir einstaklingar með þekkingu á málinu stigið fram og greint frá langvarandi áhyggjum af öryggi Titan, meðal annars leikstjórinn og ævintýramaðurinn James Cameron.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×