Innlent

Mæður í Hveragerði búnar að fá sig fullsaddar af stöðunni

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Mæður í Hveragerði ákváðu að boða til mótmæla til að koma hreyfingu á viðræður BSRB og SÍS.
Mæður í Hveragerði ákváðu að boða til mótmæla til að koma hreyfingu á viðræður BSRB og SÍS.

Þrjár mæður sem búa í Hveragerði, og hafa fengið nóg af samningsleysi og verkföllum, boða til samstöðufundar klukkan tíu í fyrramálið fyrir starfsfólk BSRB en samstöðufundurinn er haldinn við Borgartún 30 í Reykjavík þar sem Samband íslenskra sveitarfélaga er til húsa.

Þær þekktust ekkert fyrir verkföllinn en eftir að verkföllin hófust þann 15. maí og drógust á langinn rann þeim blóðið til skyldunnar og ákváðu að þær þyrftu að gera eitthvað sjálfar til að koma hreyfingu á málið með mótmælum.

Þær eru sammála um að fólk sem starfar á leikskólum sé algjörlega ómissandi og að starfsfólkið þurfi að fá sanngjörn laun. Þær vilja senda Sambandi íslenskra sveitarfélaga skýr skilaboð; SÍS verði að semja við starfsfólk BSRB án tafar. 

Farið var ítarlega yfir stöðuna í kjaradeilu BSRB og SÍS í kvöldfréttum Stöðvar 2. Rætt er við mæðurnar í lok innslagsins.

Fréttastofa hitti mæðurnar þrjár og allan barnahópinn þeirra í Hveragerði í dag. Þær segja verkföllin hafa haft gríðarlega mikil og margvísleg áhrif á þeirra daglega líf.

„Ég er til dæmis í veikindaleyfi en annars er ég starfsmaður. Ég er heima en ég þarf að sækja námskeið sem ég verð að fara á en það eru aðrir foreldrar sem eru með þrjú börn en börnin eru ekki að komast á sama tíma þannig að þetta hefur áhrif á alla,“ segir Ester María Ragnarsdóttir sem er ein þeirra sem boðar til mótmælanna.

Kvenréttinda- og jafnréttismál

„Maðurinn minn er að vinna í Reykjavík og kemur heim hálf sjö, sjö þannig að ég bara sé um þetta því ég er í fæðingarorlofi með þennan sex mánaða,“ segir Astrid Jóhanna Kristjánsdóttir og horfir á litla drenginn sinn en hún á einnig þrjú eldri börn. 

„Mér finnst þetta bara vera svolítið kvenréttinda- og jafnréttismál. Og leikskólarnir eru það og við viljum hafa ánægt starfsfólk og það skiptir okkur bara rosalega miklu máli að þetta sé í lagi. Ég er ekki vön því að mótmæla, og þetta er ekki líkt mér, en þetta er bara komið gott!“ segir Astrid og Ester María tekur undir með henni.

„Bið fengum nóg af því að tala og ætlum núna bara að gera.“

Erla Þórdís Traustadóttir bendir á að samningsleysið komi líka niður á börnunum sem vilji komast í leikskólann sinn.

„Þetta er óþægilegt fyrir hana.“ Hún segir að stelpan sín borði minna heima hjá sér en á leikskólanum. Rútínan og hvíldin á leikskólanum skipti miklu máli. „Og það er náttúrulega aðallega það, börn þrífast svo mikið á rútínu.“

Svekktur vegna sundnámskeiðs sem ekkert varð af

Hinn átta ára gamli Egill Thor Snævarsson er frekar súr yfir því að þurfa að missa af sundnámskeiði sem hann hafði hlakkað mikið til að fara á með litlu systur sinni. „Mig langaði á sundnámskeiðið en það var verkfall,“ segir Egill.


Tengdar fréttir

Fé­lög BSRB eiga digra sjóði sem duga í langt verk­fall

Sveitarfélögin hafa ekki samið um leiðréttingu eða eingreiðslu við önnur stéttarfélög sem nýlega er samið við eins og BSRB krefst þess að fá. Formaður BSRB segir greiðsluna hins vegar réttlætismál og þau ellefu félög sem nú væru í verkfalli ættu digra sjóði sem gætu staðið undir verkfallsbótum í langan tíma.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×