Lífið

Fólk stofnar fyrir­tæki með að­stoð Ís­lendinga

Aníta Guðlaug Axelsdóttir skrifar
Sjómaður í Sierra Leone segir fiskinn að hverfa

Alls staðar á hnettinum erum við mannfólkið að kljást við það sama, að búa okkur til lífvænleg skilyrði. Að koma þaki yfir höfuðið, hafa öruggt aðgengi að mat, og hafa tækifæri til að afla sér tekna.

Þegar RAX heyrði af því að í Sierra Leone væru strendurnar að eyðast og sjórinn farinn að taka neðri hæðir af húsum, langaði hann að kynna sér lífið þar, ekki síst vegna þess að íslenski velgjörðasjóðurinn Aurora foundation er með starfsemi í landinu og hjálpar fólki að stofna fyrirtæki og búa til störf svo að fólkið hafi lífsviðurværi á heimaslóðum.

„Fólk vill flest búa í sínu heimalandi þannig að þetta er ein flottasta þróunaraðstoð sem að ég hef séð.“

Konur að störfum í Sierra Leone.RAX

Ákveðinnar tortryggni gætti meðal sumra heimamanna gangvart útlendingum meðal annars vegna þess að erlend stórfyrirtæki höfðu sölsað undir sig fiskimiðin í krafti mikillar spillingar í landinu. Þar að auki var mikill fjöldi fólks þar sem RAX fór um sem torveldaði myndatökur. Hann tók því líka myndir á ferð í bíl á milli staða sem sumar hverjar eru í miklu uppáhaldi hjá honum.

„Það er kona sem situr á götunni og þetta er eins og þú sért í annarri veröld, þarft að horfa á hana svolítið til að átta þig á henni.“

Eins og að vera í annarri veröld. Sérð þú sitjandi konuna?RAX

RAX myndaði líka konu að nafni Yvonne Aki-Sawyeer sem er borgarstjóri Freetown, höfuðborgar Sierra Leone. Hún tók við embættinu árið 2018 og er mikil baráttukona gegn spillingu.

„Hún er í mínum huga ákveðin von fyrir þessa þjóð.“

Yvonne Aki-Sawyeer borgarstjóri Freetown.RAX

Söguna af ferð RAX til Sierra Leone má sjá í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan.

Klippa: RAX augnablik - Lífið í Sierra Leone

Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti úr smiðju RAX.

RAX var eitt sinn á ferð í Lofoten í Noregi þar sem hann myndaði lífi á þessu fallega svæði. Hann myndaði fólk í sjósundi og við brimbrettaiðkun í köldu Atlantshafinu og náði líka magnaðri mynd af fljúgandi haferni í miklu návígi.

Klippa: RAX Augnablik - Haförninn í Lofoten

RAX fór líka með gönguhópi til Portúgal sem gekk meðal annars um lítil sveitaþorpi. Í einu þeirra hitti RAX hóp glaðlegra eldri kvenna sem allar virtust heita María, og sögðu honum hvers vegna jafn fáir karlmenn byggju í þorpinu og raun bar vitni.

Klippa: RAX Augnablik - Maríurnar í Lombardinha

RAX fór líka í ævintýraferð til eldfjallaeyjarinnar Krakatá með eldfjallafræðingnum Haraldi Sigurðssyni þar sem RAX hitti meðal annars nútímalega sjóræningja.

Klippa: RAX Augnablik - Krakatá, eyjan sem sprakk

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×