Segir meinta ritskoðun á Ríkisútvarpinu ritstjórn Jakob Bjarnar skrifar 28. apríl 2023 15:41 Sif heldur því fram að hún hafi mátt sæta ritskoðun af hálfu Ríkisútvarpsins 2014. En Frank segir að það sem hafi ráðið því að hún var beðin um að endurskoða sinn pistil var sú staðreynd að honum og Bergsteini Sigurðssyni, umsjónarmanni Morgunútvarpsins, fannst komið gott með Sigmund Davíð og Framsóknarflokkinn. Pistlahöfundurinn þekkti Sif Sigmarsdóttir heldur því fram að hún hafi mátt sæta ritskoðun þegar hún lagði til pistla í Morgunútvarp Rásar 2 Ríkisútvarpsins. Dagskrárstjórinn segir þetta úr lausu lofti gripið, um hafi verið að ræða ritstjórn, ekki ritskoðun og á þessu tvennu sé munur.
Sif greinir frá þessu í nýjum pistli sem birtist á Heimildinni í morgun. Hún leggur út af fjölmiðlafrelsi, en þar segir hún Íslendinga algjöra eftirbáta annarra Norðurlandaþjóða, og nefnir sem dæmi eigin reynslu. Árið 2014 lagði hún til pistla í morgunútvarpið. Hún fékk skilaboð frá þáverandi yfirmanni sínum á Ríkisútvarpinu sem vildi fá annan pistil en þann sem Sif lagði fram. „Svo virðist sem vikulegur stjórnmálapistill minn í dægurmálaþætti á Rás 2 hafi valdið titringi. Pistillinn fjallaði um andstöðu Framsóknarflokksins við byggingu mosku í Reykjavík. Dagskrárstjóri Rásar 2 óskar þess að pistlar mínir verði bornir undir hann persónulega áður en þeir heyrist á öldum ljósvakans,“ segir meðal annars í pistli Sifjar. Hún segist hafa orðið við því. Sif greinir frá því að pistlar hennar hafi fjallað um hitamál þau sem uppi voru og pistillinn fjallaði um skakkaföll Framsóknarflokksins sem þá voru ofarlega á baugi, í þessu tilfelli í tengslum við andstöðu flokksins við byggingu mosku í Reykjavík. Sif minnir á að þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson varð forsætisráðherra hafi hann látið verða eitt sitt fyrsta verk að rita frægan pistil þar sem hann barmaði sér ákaft undan gagnrýni fjölmiðla á hendur sér og Framsóknarflokknum og talaði hann um loftárásir í því samhengi. Sem svo varð til þess að setja alla umfjöllun um stjórnartíð hans í sérkennilegt samhengi. Bergsteinn og Frank vildu ekki enn einn pistilinn um Sigmund „Aldrei nokkurn tímann hafði mér dottið í hug að kona, sem sæti á náttfötunum fyrir framan sjónvarpið eins oft og hún kæmist upp með, sæist sem flugskeyti á radar forsætisráðherrans og flokks hans. Dagskrárstjórinn kvað upp dóm sinn. Mér var tjáð að hann væri „engin ritskoðunartýpa“. Engu að síður vildi hann nýjan pistil um annað efni. Honum þótti óþarfi að fjalla um Framsóknarflokkinn tvær vikur í röð.“ Sigmundur Davíð var mjög í deiglunni á þessum tíma, fyrirferð hans var mikil eins og þessi umfjöllun, að algjöru handahófi, sýnir. Erfitt var að hafa skoðun á nokkrum sköpuðum hlut án þess að hann tengdist því með einum eða öðrum hætti. Umræddur dagskrárstjóri var á þeim tíma Frank Hall sem veit ekki alveg hvaðan á sig stendur veðrið. Hann hafnar því með öllu að um hafi verið að ræða ritskoðun. Um hafi verið að ræða ritstjórn og á þessu tvennu sé munur. Ekki hafi verið með neinum hætti verið að hlutast til um skoðanir pistlahöfundarins. „Já, ég man alveg eftir þessu. Við Bergsteinn Sigurðsson vorum að skoða þetta saman. Hann var með morgunútvarpið þá,“ segir Frank. Hann lýsir því að á þessu hafi gengið hríð, með umfjöllun um Framsóknarflokkinn og þetta hafi verið annar pistillinn í röð sem fjallaði um það efni. „Við urðum sammála um að þetta væri orðið nóg. Okkur langaði ekki í enn einn pistilinn um þetta.“ Litapallíetta útvarpsþáttar ekki breið Frank segist hafa mikið dálæti á Sif sem pistlahöfundi og ekki hafi verið að hlutast til um skoðanir hennar eða framsetningu með neinum hætti. „Pistlahöfundar höfðu algerlega frjálsar hendur. En þetta getur verið erfitt þegar þú ert með til þess að gera lítinn þá, litapallíettan er ekki eins breið og er í stóru dagblaði,“ segir Frank. Hann segir að þá verði að hugsa þetta öðru vísi og forðast beri einsleitni. Að ekki myndist sérkennileg slagsíða. En auðvitað hafi verið eðlilegt að Sigmundur Davíð væri til umfjöllunar, slík var fyrirferðin. Þegar Sif var vinsamlegast beðin um að endurskoða pistil sinn þá var umsjónarmaður Morgunútvarpsins Bergsteinn Sigurðsson. Hann og Frank voru sammála um að nóg væri komið um Sigmund Davíð.vísir/vilhelm Frank heyrði í Bergsteini til að athuga með hvort sig misminnti og Bergsteinn benti á að Sif hafi ekki viljað skrifa annan pistil og það hafi farið svo að pistillinn var fluttur. En eftir stendur spurningin um muninn á ritskoðun og ritstjórn. Margir eiga erfitt með að gera greinarmun á þessu tvennu og Frank segir það rétt, þarna sé mjó lína. En það sé alveg klárt í sínum hug að þetta tilvik heyri undir ritstjórn en ekki ritskoðun. Glittir í afskipti stjórnmálaflokkanna Frank svarar spurður hvort Framsóknarflokkurinn hafi viljað hlutast til um dagskrárefni á Ríkisútvarpinu því þannig til að það hafi enginn talað við sig. Frank Hall, sem starfaði í fjögur ár sem dagskrárstjóri Rásar 2, segist aldrei hafa upplifað það sem flokka megi sem óeðlileg afskipti stjórnmálamanna af dagskrárgerðinni. En hann hafi vissulega heyrt af slíku. Staða Ríkisútvarpsins sem fjölmiðils er á margan hátt sérkennileg. Það er í eigu ríkisins, og því telja margir kjörnir fulltrúar sig eiga kröfu á því að sín sjónarmið heyrist. Og í stjórn útvarpsins sitja fulltrúar flokkanna. Um leið þarf miðillinn að veita valdhöfum eðlilegt aðhald samkvæmt hlutlægnisjónarmiðum sem skráð eru í siðareglur blaðamanna. Frank starfaði í fjögur ár sem dagskrárstjóri Rásar 2 og því ekki úr vegi að spyrja hann hvort eitthvað hafi verið um það sem flokka megi sem óeðlileg afskipti stjórnmálamanna að dagskrárgerð og efnistökum? Hvort hann hafi upplifað slíkt? „Ekki ég persónulega, en ég heyrði alveg af slíku. En það er erfitt að dæma þegar maður er ekki að segja af eigin reynslu. En ég held að það megi alveg segja að um hafi verið að ræða ákveðinn þrýsting, og svo kvartanir.“
Fjölmiðlar Framsóknarflokkurinn Rekstur hins opinbera Tjáningarfrelsi Ríkisútvarpið Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Sjá meira