Innlent

„Ég er með djúpt sár í hjartanu“

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Móðir mannsins segir sorgina óbærilega. Mesta sjokkið eigi þó líklega eftir að koma.
Móðir mannsins segir sorgina óbærilega. Mesta sjokkið eigi þó líklega eftir að koma. Vísir/SteingrímurDúi

Móðir mannsins sem lést eftir hnífstunguárás á bílastæði við Fjarðarkaup á fimmtudag segist vera að bugast af sorg. Hún segist ekki dæma foreldra árásarmannanna, þeir væru krakkar að byrja lífið. 

Heimildin ræddi við móður mannsins sem lést eftir árásina. Hann var 27 ára gamall pólskur karlmaður, átti fjölskyldu í heimalandinu, dóttur sem fæddist í Reykjavík. Maðurinn hafði komið aftur hingað til lands að vinna, til að sjá fyrir fjölskyldunni úti í Póllandi.

„Þau sem gerðu þetta eru bara krakkar sem eru að byrja lífið. Ég dæmi ekki foreldra þeirra því ég er sjálf móðir. Ég er með djúpt sár í hjartanu,“ segir móðir mannsins í samtali við Heimildina.

Óbærileg sorg

Hún segir sorgina óbærilega en erfitt hafi gengið að fá upplýsingar um framgang málsins. Öll samskipti fari í gegnum túlk og nýr túlkur komi jafnóðum að.

Móðirin var í dag viðstödd bænastund sem haldin var til stuðnings vinum og vandamönnum mannsins. Hún segist hafa fengið margar fallegar kveðjur frá Íslendingum og Pólverjum en yfirskrift bænastundarinnar var að „sameinast og andmæla ofbeldi ungs fólks á götum borgarinnar.“

Fjölmenni sótti bænastundina, sem haldin var í Landakotskirkju klukkan 13:00. Kristófer Gajowski skipulagði viðburðinn á eigin vegum en hann sagði að sér hafi runnið blóðið til skyldunnar.

„Þessir atburðir hafa tekið mjög á pólska samfélagið á Íslandi og ég finn fyrir því að það er mikil reiði vegna málsins. Við erum öll Íslendingar og við þurfum að standa saman gegn svona ofbeldi,“ sagði Kristófer í samtali við fréttastofu fyrr í dag.

Fjórir Íslendingar voru í gær úrskurðaðir í sex daga gæsluvarðhald vegna málsins, ungmenni á aldrinum sautján til nítján ára. Lögregla hefur ekki getað tjáð sig um aðdraganda árásarinnar eða ástæður. Meðal annars er til skoðunar hvort myndband af árásinni sé í dreifingu. Vitni voru að árásinni sem tilkynntu málið til lögreglu sem kom skjótt á vettvang. Hinn látni var fluttur á bráðamóttöku en úrskurðaður látinn skömmu síðar, með fleiri en einn stunguáverka.

Tvö hinna grunuðu voru handtekin á fimmtudagskvöld, einn sakborninga var handtekinn aðfararnótt fimmtudags og sá síðasti undir morgun. 

RÚV greindi frá því í dag að samskipti hins látna hafi hafist á bar skammt frá Fjarðarkaupum þar sem árásin varð. Mbl.is greindi frá því síðdegis að ekki sé talið að árásin tengist uppruna mannsins. Þó verði allir fletir skoðaðir í viðlíka rannsókn.


Tengdar fréttir

Telja mynd­band af á­rásinni mögulega í dreifingu

Lögregla er nú með til skoðunar hvort myndband af árásinni í Hafnarfirði, sem leiddi til dauða manns á þrítugsaldri, sé í dreifingu. Lögregla telur sig vera með hnífinn sem notaður var við árásina undir höndum.

Mynd­efni og til­­­kynning vitnis skipti miklu fyrir rann­sóknina

Lögregla skoðar nú gögn úr eftirlitsmyndavélum í nágrenni Fjarðarkaupa í Hafnarfirði til að varpa ljósi á árásina sem leiddi til dauða pólsks manns á þrítugsaldri á fimmtudagskvöld. Fjórir Íslendingar sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×