Menning

Pétur Gautur er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2023

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Pétur Gautur Svavarsson bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2023 með Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra.
Pétur Gautur Svavarsson bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2023 með Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra. aðsend

Pétur Gautur Svavarsson myndlistarmaður er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2023. Pétur Gautur hefur unnið af krafti að list sinni síðan hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Portinu í Hafnarfirði árið 1993. Hefð hefur skapast fyrir því að halda síðasta vetrardag hátíðlegan í Hafnarfirði með vali á bæjarlistamanni ársins.

Í tilkynningu er farið yfir feril Péturs:

„Pétur Gautur byrjaði ungur að læra á krakkanámskeiðum í Myndlista- og handíðaskólanum. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund fór hann aftur í Myndlista- og handíðaskólann og lauk lokaprófi þaðan árið 1991. Þá lærði Pétur leikmyndagerð í gamla konunglega leiklistarskólanum Statens Teaterskole í Kaupmannahöfn í Danmörku og las listasögu við Háskóla Íslands. Hann hefur verið atkvæðamikill kyrralífsmálari í yfir þrjátíu ár og verk hans eru landsmönnum vel kunn, en hann er helst þekktur fyrir uppstillingar sínar þar sem jafnan koma við sögu ávextir eða blóm.“

Mikil líf og fjör var í Hafnarborg við útnefningu á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar 2023 og afhendingu menningarstyrkja. aðsend

Hefur haldið á þriðja tug einkasýninga hér heima og erlendis

„Pétur Gautur hefur unnið af krafti að list sinni í yfir þrjátíu ár bæði á Íslandi og í Danmörku. Hann hefur haldið á þriðja tug einkasýninga hérlendis og í Danmörku og Svíþjóð: Meðal annars tvær í Hafnarborg, Gerðarsafni í Kópavogi, Gallerí Fold, Gallerí Borg og í Kaupmannahöfn. Þá hefur hann tekið þátt í nokkrum samsýningum. Verk eftir Pétur eru meðal annars í eigu Seðlabanka Íslands, Landsbanka Íslands, Arion-banka, Sparisjóðs Hafnarfjarðar, Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar, Eimskips og ÍSAL. 

Pétur Gautur opnaði einkasýningu í Hafnarborg á 34 ára afmælisdaginn sinn árið 2000 og aðra sýningu á fertugsafmælinu sínu sex árum síðar. Á sýningunni voru áður óbirt verk og bar sýningin yfirskriftina „Uppstillingar með skálum og fleira“ en „skálin“ hefur orðið að einskonar vörumerki Péturs til fjölda margra ára án þess að hann hafi ætlað sér það. Uppstillingar eru klassískt mótíf í listasögunni sem Pétur Gautur hefur kannað og leikið sér að í gegnum ferilinn. Skálin þróaðist frá því að Pétur var í abstraktinu þegar hann var að byrja og var mikið í hringlaga formum sem þróuðust smátt og smátt í þessa skál á dúkuðu borði og svo ávextir og slíkt. Pétur Gautur er vel þekktur fyrir þessar tímalausu kyrralífsmyndir sínar og ferskt litaval. Hann trúir á einfaldleikann og notar oft óhefðbundna, en vel valda liti í myndir sínar.

Pétur Gautur er með vinnustofu á horni Njálsgötu og Snorrabrautar í Reykjavík og þar hefur Pétur nóg pláss til að vinna með fimm metra lofthæð og hefur haldið þar litlar vinnustofusýningar. Vinnustofan er gjarnan galopin á Menningarnótt í Reykjavík með ný málverk á veggjum eftir húsráðandann og boðið uppá lifandi tónlist,“ segir í tilkynningu.

Þeir sem hlotið hafa nafnbótina bæjarlistamaður Hafnarfjarðar síðustu ár eru:

2022 – Björn Thoroddsen, gítarleikari

2021 – Friðrik Dór Jónsson, tónlistarmaður

2020 – Bergrún Íris Sævarsdóttir, barnabókahöfundur og teiknari

2019 – Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri

2018 – Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður

2017 – Steingrímur Eyfjörð, myndlistarmaður

Ekki voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2015 til 2016

2014 – Andrés Þór Gunnlaugsson, tónlistarmaður

Ekki voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2010 til 2013

2009 – Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona

2008 – Sigurður Sigurjónsson, leikari

2007 – Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður

2006 – Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona

2005 – Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), myndlistarmaður

Við val á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar kallar menningar- og ferðamálanefnd eftir tilnefningum bæjarbúa og árlega berst mikill fjöldi þeirra enda hefur Hafnarförður stimplað sig inn sem vagga menningar og lista og er þekktur fyrir iðandi menningarlíf sem er drifið áfram af kraftmiklu listafólki þar sem einstaklingurinn sjálfur, framlag hans, sköpun og þátttaka spilar stærsta hlutverkið. Bæjarlistamaður fær 1,5 milljónir í viðurkenningarskyni til að vinna áfram að list sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×