Fótbolti

Brynjar Ingi genginn til liðs við HamKam

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Brynjar Ingi Bjarnason er genginn til liðs við HamKam í norsku úrvalsdeildinni.
Brynjar Ingi Bjarnason er genginn til liðs við HamKam í norsku úrvalsdeildinni. Getty/Juan Mauel Serrano Arce

Landsliðsmaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason er genginn til liðs við norksa félagið HamKam frá Vålerenga.

Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins, en Brynjar skrifar undir þriggja ára samning við HamKam eftir að hafa leikið eitt tímabil með Vålerenga.

Þar á undan var Brynjar á mála hjá ítalska félaginu Lecce í um hálft ár, en hann var keyptur þangað frá KA

Brynjar er 23 ára gamall varnarmaður sem á að baki 14 leiki fyrir íslenska landsliðið þar sem hann hefur skorað tvö mörk.

Brynjar kemur til HamKam næstkomandi sunnudag og hefur æfingar eftir helgi að því er fram kemur á heimsíðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×