Sport

Sólveig hoppaði upp fyrir Þuríði Erlu, Söru Sigmunds og Anníe Mist

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sólveig Sigurðardóttir átti fína viku á CrossFit Open og tókst að hækka sig mikið á listanum.
Sólveig Sigurðardóttir átti fína viku á CrossFit Open og tókst að hækka sig mikið á listanum. Instagram/@solasigurdardottir

Sólveig Sigurðardóttir stóð sig vel í annarri viku The Open og naut sín greinilega vel við hlið reynsluboltanna Anníe Mistar Þórisdóttur og Söru Sigmundsdóttur.

Sólveig, Anníe og Sara gerðu æfingu 23.2a og 23.2b saman og Sólveig stóð sig best af þeim sem skilaði henni stóru stökki á heildarlistanum.

Sólveig er í framhaldinu orðin efst af íslensku stelpunum í opna hluta undankeppni heimsleikanna í CrossFit og munaði þar miklu um að hún lyfti þyngst af þeim öllum í seinni hluta 23.2. Alls fóru 90,7 kíló á loft hjá Sólveigu í lyftingahlutanum sem var hnébeygja og axlarpressa í framhaldinu. Anníe Mist lyfti 84,8 kílóum, Þuríður Erla Helgadóttir lyfti 83,5 kílóum og Sara lyfti 79,8 kílóum.

Sólveig var eina íslenska konan sem náði að lyfta 200 pundum í þessum lyfingahluta sem kom í beinu framhaldi af því að gera eins margar endurtekningar á fimmtán mínútum af fimm burpees-æfingum með upphífingum og tíu stuttum sprettum.

Sólveig ofar en Björgvin Karl

Sólveig er í 37. sæti og er í raun efst allra Íslendinga því langefsti íslenski karlinn, Björgvin Karl Guðmundsson, er í fimmtugasta sæti. Sólveig var í 119. sæti eftir 23.1.

Björgvin Karl var í 21. sæti eftir viku eitt en dettur niður um 29 sæti á milli vikna. Það breytir þó ekki því að hann er langefstur af íslensku strákunum en næstur honum er Hafsteinn Gunnlaugsson sem er í 294. sæti og Ægir Björn Gunnsteinsson er síðan þriðji í 339. sætinu.

Næstu íslensku konurnar á eftir Sólveigu eru Anníe Mist í 67. sæti og Katrín Tanja Davíðsdóttir sem er í 80. sæti. Við teljum Katrínu auðvitað með þótt hún sé skráð sem bandarískur keppandi á þessu CrossFit tímabili.

Sara féll niður um meira tvö hundruð sæti

Þuríður Erla Helgadóttir var efst íslensku stelpnanna eftir viku eitt en fer nú úr ellefta sæti niður í 86. sætið. Sara fékk líka alla leið niður í 235. sæti eftir að hafa verið í fimmtánda sæti eftir viku eitt. Sara ekki lengur meðal fimm efstu íslensku stelpna ef við teljum Katrínu Tönju með í þann hóp. Hjördís Óskarsdóttir fór upp fyrir Söru í þessari viku. Hjördís er í 203. sæti.

Þessi önnur vika taldi mikið því keppendur fengu stig fyrir báða hlutana. Það útskýrir því að hlut hversu miklar breytingar urðu á röð keppenda. Æfingarnar má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×