Tíska og hönnun

Ítalskur hönnuður innréttar íbúðirnar á Héðinsreit

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vala Matt heimsótti Marco Piva á Ítalíu.
Vala Matt heimsótti Marco Piva á Ítalíu. Samsett

Einn af þekktustu arkitektum og hönnuðum Ítalu, Marco Piva, hefur fengið það verkefni að innrétta íbúðirnar í nýju húsunum við sjóinn á Héðinsreitnum í Vesturbænum.

Fyrir íbúðirnar á Héðinsreit hannaði hann þrjár mismunandi innréttingar og stíla til að velja úr. 

„Ísland kom mér verulega á óvart þegar ég heimsótti það sem ferðamaður. Ég hafði heimsótt margar náttúruperlur en en náttúran, andrúmsloftið og upplifunin á eyjunni ykkar er algjört einsdæmi,“ segir Marco sem sótti innblástur í íslenska náttúru í hönnun sinni fyrir Héðinsreit. 

„Hugmyndin er að skapa endurspeglun náttúruaflanna í hönnun íbúðanna. Við vitum að Íslendingar dvelja mikið inni á eigin heimilum á þeim árstíðum þegar myrkrið ríkir.“

Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og hitti Marco Piva á teiknistofunni hans í Mílano þar sem hann er fæddur og uppalinn. Innslag hennar má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Þúsundir íbúða í pípunum í Reykjavík

Á næstu tíu árum verða byggðar um eða yfir tíu þúsund íbúðir í Reykjavík og tuttugu og fimm þúsund á næstu tveimur áratugum sem þýðir að fjöldi íbúða í borginni tvöfaldist á þeim tíma. Þá verði tuttugu og fjórum milljörðum varið í uppbyggingu innviða í tengslum við fjölgun íbúða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×