Sport

Stórt fyrir félagið og styrktaraðilana að komast í Höllina

Andri Már Eggertsson skrifar
Sigurður Bragason í leik kvöldsins.
Sigurður Bragason í leik kvöldsins. Vísir/Diego

ÍBV vann eins marks sigur á Stjörnunni 22-23. Þrátt fyrir að hafa verið yfir allan leikinn þá var Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, ekki það sáttur með frammistöðu liðsins.

„Mér fannst Stjarnan betri í seinni hálfleik og það hefði ekki verið óeðlilegt ef þær hefðu jafnað. Þetta var okkar lélegasti leikur í langan tíma og ég er ósáttur við það,“ sagði Sigurður Bragason eftir leik.

ÍBV spilaði frábæran varnarleik í fyrri hálfleik þar sem Stjarnan skoraði aðeins sjö mörk og tapaði tíu boltum.

„Að fá á sig sjö mörk í einum hálfleik er frábært. Sérstaklega þar sem við vorum aðeins með fimm varin skot. Ég var ánægður með varnarleikinn og þær fundu fá svör og heilt yfir var varnarleikurinn flottur en við eigum inni markvörslu.“

Farið yfir málin.Vísir/Diego

Sigurður var langt frá því að vera ánægður með sóknarleikinn þar sem ÍBV fór illa með dauðafæri

„Við klikkuðum á fullt af dauðafærum. Við vorum hægar og labbandi í öll kerfi og í stöðu skiptingar. Karabatic getur þetta en ekki við. Þetta var öðruvísi handbolti en við höfum verið að spila þar sem sóknarleikurinn okkar hefur verið góður.“

Sigurður var ánægður með að ÍBV sé komið í undanúrslit í Powerade-bikarnum og fór yfir hvað það skiptir félaginu miklu máli.

„Það er mikilvægt að komast í Höllina og það er stórt fyrir félagið og styrktaraðilana. Þetta var mikilvægur sigur og okkur langaði í Höllina,“ sagði Sigurður Bragason að lokum og bætti við að hann var orðinn stressaður á lokamínútunum.

Sigurður var rólegri en oft áður í kvöld.Vísir/Diego



Fleiri fréttir

Sjá meira


×