Innlent

Viðvaranir áfram í gildi fram eftir morgni

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Björgunarsveit að störfum í gær.
Björgunarsveit að störfum í gær. Mynd/Landsbjörg

Appelsínugul viðvörun er enn í gildi á Suðurlandi og verður fram til klukkan 10 samkvæmt vef Veðurstofunnar.

Sömu sögu er að segja af Suðausturlandi en þar breytist liturinn í gulann klukkan 9 og stendur til klukkan 13 í dag. Annarsstaðar eru gular viðvaranir víðast hvar í gildi nema á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og á Austfjörðum. Á Ströndum og Norðurlandi eystra rennur þó viðvörunin úr gildi núna klukkan 7.

Vegurinn um Hellisheiði opnaði í morgun og einnig vegurinn um Þrengslin. Þá er lokað um Mosfellsheiði en þar er óvissustig fram til klukkan 9. Vegurinn um Kjalarnes er opinn.

Þá er Hringvegurinn lokaður frá Vík og langleiðina austur á firði. Öxnadalsheiðin er síðan lokuð og víða ófært austur af Mývatni en nánari upplýsingar um stöðuna á færðinni er að finna á vef Vegagerðarinnar.

Fyrir vestan er síðan lokað um Steingrímsfjarðarheiðina og Þröskulda. Þar er óvissustig í gildi fram til klukkan tíu. Fróðárheiðin er ófær og vegurinn um Svínadal og sömu sögu er að segja af Bröttubrekku.

Nóg að gera hjá Landsbjörg

Björgunarsveitir um land allt höfðu í nægu að snúast í gærdag og í gærkvöldi. 

Vegfarendur voru aðstoðaðir á norðanverðu Sæfellsnesi, Björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi aðstoðaði vegfarendur á Vatnaleið og kom þeim til Stykkishólms og björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ aðstoðaði vegfarendur á Fróðárheiði og á Arnarstapavegi, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

Fyrr um kvöldið höfðu björgunarsveitirnar aðstoðað fólk í Grafarvogi í Reykjavík þar sem ófærð myndaðist í grennd við Egilshöll um tíma og einnig í Grafarholtinu.

Eitthvað um röskun á flugi

Eitthvað hefur verið um að aflýsa hafi þurft flugferðum. Komum véla Icelandair frá Newark, Toronto, Washington og Chicago hefur verið aflýst samkvæmt heimasíðu Isavia en aðrar ferðir virðast á áætlun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Austlæg átt 3-10 m/s og dálítil él, en þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. Frost 0 til 8 stig. Bætir í vind um kvöldið.

Á fimmtudag: Gengur í austan hvassviðri eða storm með snjókomu, en hlýnar sunnantil eftir hádegi með rigningu eða slyddu á láglendi. Snýst í heldur hægari suðvestanátt seinnipartinn og kólnar aftur með éljum, en úrkomuminna norðaustanlands.

Á föstudag: Austlæg átt og él. Gengur í stífa norðvestan- og vestanátt eftir hádegi með snjókomu víða, en slyddu austast. Frost 0 til 7 stig.

Á laugardag: Vestan og norðvestanátt og éljagangur, en þurrt að kalla suðaustantil. Frost 2 til 11 stig. Dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið.

Á sunnudag: Breytileg átt og bjartviðri, en vaxandi suðaustanátt og hlýnar með rigningu eða slyddu sunnantil síðdegis.

Á mánudag: Útlit fyrir sunnanátt og rigningu, en snýst í suðvestanátt með éljagangi og kólnar þegar líður á daginn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×