Lífið

Hún sagði „já, já“ við óvæntu bónorði íslenska flugstjórans

Kristján Már Unnarsson skrifar
Flugstjórinn Róbert Evensen ber fram bónorðið um borð í flugvél Air Greenland.
Flugstjórinn Róbert Evensen ber fram bónorðið um borð í flugvél Air Greenland. Skjáskot/Air Greenland

Íslenskur flugstjóri í innanlandsflugi á Grænlandi kom farþegum sínum sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu þegar hann birtist úr stjórnklefanum og bað einn flugfarþegann um að giftast sér.

Sagt var frá þessu óvænta bónorði í fréttum Stöðvar 2. Flugvélin var á leið frá Kangerlussuaq til Nuuk en meðal farþega var hin grænlenska Michala Hansen sem hugðist eyða jólunum í Nuuk með kærasta sínum, Íslendingnum Róbert Evensen, og vissi hún ekki betur en að hann myndi taka á móti henni í flugstöðinni.

Flugstöðin á Nuuk-flugvelli.Friðrik Þór Halldórsson

Svo vill til að Róbert starfar sem flugstjóri hjá Air Greenland og ákvað hann að koma kærustunni á óvart. Hann skipti á vakt við samstarfsfélaga sinn og það var því Róbert sem flaug Dash 8-flugvélinni til Nuuk án þess að kærastan vissi.

Dash 8-flugvél Air Greenland á flugvellinum í Nuuk.Friðrik Þór Halldórsson

Eftir að hafa stýrt vélinni að flugstöðinni og slökkt á hreyflunum birtist hann svo í farþegarýminu með jólaveinahúfu á höfði. Og takið eftir viðbrögðum konunnar til vinstri á myndbandinu frá Air Greenland þegar hún áttar sig á því að kærastinn Róbert er flugstjórinn um borð og er að tala í hátalarakerfið:

Húnvetningurinn Róbert kominn í hátalarakerfið. Kærastan hafði ekki hugmynd um að hann væri flugstjórinn um borð þegar hann birtist óvænt úr stjórnklefanum til að biðja hennar.Skjáskot/Air Greenland

„Kæru gestir. Velkomnir til Nuuk. Ég er með mikilvæga tilkynningu. Við erum nefnilega með mjög sérstakan farþega með okkur. Það er Michala Hansen sem situr í sæti 2B.

Vandinn er sá hún er „bara“ kærastan mín, svo við verðum að gera eitthvað í því. Því vil ég gjarnan spyrja þig, Michala. Viltu giftast mér?“

„Já, já, það vil ég,“ heyrðist hún svara við fögnuð samferðamanna um borð. 

Þess má geta að flugstjórinn rómantíski er fæddur og uppalinn á Blönduósi. Róbert flaug um tíma hjá Wow air, en hefur undanfarin tvö ár starfað hjá Air Greenland en kærustuparið er búsett í Kaupmannahöfn.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Íslenski flugstjórinn birtist óvænt og bar fram bónorð

Íslenskur flugstjóri Air Greenland í innanlandsflugi frá Kangerlussuaq til Nuuk kom grænlenskri kærustu sinni sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu. Hún hafði enga hugmynd um að hann væri um borð, hvað þá að hann væri að stýra flugvélinni, þegar hann birtist óvænt úr stjórnklefanum, fór í hátalarakerfið og bar fram bónorð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×