Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrsta sýnis­horn úr væntan­legri Bar­bie mynd

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Myndin um dúkkuna Barbie er væntanleg næsta sumar.
Myndin um dúkkuna Barbie er væntanleg næsta sumar. warner bros

Í dag birti Warner Bros fyrsta sýnishorn úr væntanlegri kvikmynd um hina ljóshærðu, sólbrúnu og lífsglöðu Barbie. Myndin er væntanleg í kvikmyndahús næsta sumar.

Það er hin stórglæsilega ástralska leikkona Margot Robbie sem fer með hlutverk dúkkunnar heimsfrægu. Þá mun enginn annar en hjartaknúsarinn Ryan Gosling fara með hlutverk karldúkkunnar Ken.

Til hefur staðið að gera Hollywood kvikmynd um Barbie í mörg ár og nú hefur kvikmyndaframleiðandinn Warner Bros riðið á vaðið. Ótal teiknimyndir hafa verið gerðar um dúkkuna, en þetta er fyrsta leikna myndin.

Sjá: Mar­­got Robbie og Ryan Gosling verða Bar­bie og Ken

Margot Robbie fer með hlutverk Barbie.warner bros
Ryan Gosling fer með hlutverk karldúkkunnar Ken.warner bros

Breytti landslaginu

Leikstjóri myndarinnar er Greta Gerwig, en hún er einnig handritshöfundur ásamt eiginmanni sínum Noah Baumbach. Meðal leikara í myndinni eru Issa Rae, Will Ferrel, Kate McKinnon, Simu Liu, Michael Cera og America Ferrera.

Í sýnishorninu má heyra rödd leikkonunnar Helen Mirren sem fer með hlutverk sögumanns. Í sýnishorninu lýsir hún því hvernig Barbie breytti landslaginu þegar kemur að leikföngum.

„Alveg síðan fyrsta litla stúlka heims fæddist hafa verið til dúkkur. En þessar dúkkur voru alltaf lítil börn, þangað til...,“ segir í sýnishorninu sem má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Fyrsta myndin af Ryan Gosling sem Ken

Ryan Gosling mun fara með hlutverk Ken í nýrri Barbie mynd sem von er á næsta sumar en Margot Robbie bregður sér þar í hlutverk Barbie.

Mar­­got Robbie og Ryan Gosling verða Bar­bie og Ken

Hin ljóshærða, sólbrúna og lífsglaða Barbie er væntanleg á hvíta tjaldið næsta sumar. Það er hin stórglæsilega ástralska leikkona Margot Robbie sem fer með hlutverk dúkkunnar heimsfrægu. Þá mun enginn annar en hjartaknúsarinn Ryan Gosling fara með hlutverk karldúkkunnar Ken.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×