Sport

Katrín Tanja í æfinga­búðum hjá fimm­földum heims­meistara

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir er hér við hlið Mat Fraser en með þeim eru einnig Jayson Hopper, Mal O’Brien og Amanda Barnhart.
Katrín Tanja Davíðsdóttir er hér við hlið Mat Fraser en með þeim eru einnig Jayson Hopper, Mal O’Brien og Amanda Barnhart. Instagram/@mathewfras

Íslenska CrossFit stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir er að prófa nýja hluti eftir vonbrigðin í fyrra og gekk hún fyrr í haust til liðs við HWPO Training.

HWPO Training er þar sem fimmfaldi heimsmeistarinn Mat Fraser ræður ríkjum og hefur aðstoðað CrossFit fólk eftir að hann hætti að keppa sjálfur.

Katrín Tanja er ekki eina stórstjarnan sem gekk til liðs við HWPO Training fyrir komandi tímabil því það gerðu líka Amanda Barnhart og Samuel Kwant. Þau hafa öll unnið saman áður undir stjórn Ben Bergeron hjá CompTrain.

Fyrir hjá HWPO Training var hin unga en gríðarlega öfluga Mal O’Brien sem varð í öðru sæti á síðustu heimsleikum eftir að hafa verið kosin nýliði ársins árið á undan.

Fraser og Katrín urðu bæði heimsmeistarar árið 2016 en þá var Katrín að vinna í seinna skiptið en Fraser sinn fyrsta titil. Fraser endaði á því að vinna fimm ár í röð og setja met.

Katrín Tanja hafði árið á undan komið heim og æft undir stjórn Jami Tikkanen, sem hefur verið þjálfari Anníe Mistar Þórisdóttur í meira en áratug.

Katrín er ekki eini Íslendingurinn sem fylgir æfingaprógrammi HWPO Training því það gerir einnig Þuríður Erla Helgadóttir sem náði bestum árangri íslenskra kvenna á síðustu heimsleikum.

Hluti hópsins kom saman og æfði saman í síðustu viku.

Mat Fraser sagði frá þessum vikuæfingabúðum þar sem nýir meðlimir hópsins komu og æfðu með honum og öðrum stjörnum. Fraser birti meðal annars mynd af sér með Katrínu Tönju, Jayson Hopper, Mal O’Brien og Amöndu Barnhart.

Það leit út fyrir að Katrín Tanja og Mal hafi náð vel saman en Katrín birti meðal annars skemmtilegar myndir af þeim á Gillette Stadium, heimavelli New England Partriots. Katrín vann tvo heimsmeistaratitla á árunum 2015 og 2016 en Mal O’Brien er enn bara átján ára gömul og hefur allt til alls til að vinna sjálf heimsmeistaratitla í framtíðinni.

Mal hefur tekið stórtækum framförum undir stjórn Mat Fraser sem lofar vonandi góðu fyrir okkar konu. Katrín Tanja þarf nú endurkomuár eftir að hafa misst af heimsleikunum á þessu ári. Það verður fróðlegt að sjá hvort Fraser nái að koma henni aftur í hóp þeirra bestu í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×