Tíska og hönnun

Glys­girni huldu­fólks veitti Hildi Yeoman inn­blástur

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman frumsýnir glænýja línu, Hidden People, nú um helgina.
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman frumsýnir glænýja línu, Hidden People, nú um helgina. Saga Sig

Litadýrð, glans og glimmer einkenna nýja línu Hildar Yeoman, Hidden People, sem frumsýnd er þessa dagana á Airwaves. Hátíðarhöld hófust í verslun Yeoman á Laugarveginum í gær þegar tónlistarkonan JFDR spilaði fyrir gesti.

Línan Hidden People er innblásin af huldufólki og litum og áferð íslenskrar náttúru. „Enda eru til margar sögur af glæsileika og glysgirni huldufólksins sem við sækjum innblástur til,“ segir Hildur sem hannaði línuna í miðjum heimsfaraldri þegar allir voru að ferðast innanlands og spá meira í nærumhverfinu, íslenskri náttúru og þjóðsögum.

Með þessari línu kynnir Hildur ný form og nýja stíla til sögunnar, ásamt því að hafa notast mikið við endurunnin efni við hönnun og framleiðslu hennar. 

„Við höfum verið að leita ýmissa leiða til þess að vera sem umhverfisvænust. Við framleiðum til að mynda ýmsan fatnað úr endurunnu plasti sem er unnið í þráð sem gerð eru úr endurunnu polyester efni. Helsta sem skiptir þó máli er að við framleiðum hjá fjölskyldufyrirtæki sem gerir fatnað fyrir okkur í litlu magni og passar að efnin fari ekki til spillis.“

Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason sá um förðun fyrir myndatökuna.Saga Sig

Fagna línunni um helgina

Ljósmyndarinn Saga Sig myndaði nýju línuna og fór myndatakan fram í íslenskri náttúru. Við myndatökuna var notast við bæði íslenskar sem og erlendar fyrirsætur. Þeirra á meðal var fyrirsætan Molly Constable, rísandi stjarna í fyrirsætuheiminum, sem kom alla leið frá New York.

„Við höfum fylgst með Molly lengi og vorum mjög spennt að hún væri til í að koma til Íslands og taka þátt í þessu verkefni með okkur og erum ótrúlega ánægð með afraksturinn.“

Línunni verður fagnað með pompi og prakt í verslun Yeoman nú um helgina. Fögnuðurinn hófst í gær þegar tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir, betur þekkt sem JFDR, tók lagið fyrir fullu húsi.

Stemning og falleg föt á Laugarveginum um helgina

Herlegleitin halda svo áfram í kvöld þegar hljómsveitin Cyber stígur á stokk klukkan 18:30. Á morgun mun svo engin önnur en DJ Dóra Júlía þeyta skífum fyrir gesti verslunarinnar á milli klukkan 14 og 16.

Áhugasamir geta skoðað línuna betur á glænýrri heimasíðu Yeoman eða mætt í verslunina við Laugarveg 7 nú um helgina.

Fyrirsætan Molly Constable kom alla leið frá New York til þess að vera í myndatöku fyrir línuna.Saga Sig

Línan er innblásin af huldufólki og litum og áferð íslenskrar náttúru.Saga Sig

Tengdar fréttir

Venus Williams valdi Hildi Yeoman fyrir Glamour viðtal

Tennisdrottningin Venus Williams prýðir nýjustu forsíðu tímaritsins Glamour. Það vakti sérstaka athygli okkar á Lífsinu að hún klæddist flíkum frá íslensku versluninni Yeoman í viðtali við Glamour. 

Allt í blóma hjá Hildi Yeoman

Hildur Yeoman stóð fyrir sýningunni In Bloom sem var partur af HönnunarMars og fór fram í Höfuðstöðinni. Merkið hefur verið áberandi bæði innan og utan landsteinanna og er þekkt fyrir draumkennd prent, falleg snið og litadýrð. 

Hönnun Hildar Yeoman vakti athygli á tískuvikunni í London

Söngkonan Kehlani vakti athygli í hönnun Hildar Yeoman í opnunarhófi tískuvikunnar í Bretlandi, London Fashion Week. Fjölmiðlar hafa fjallað um fataval bandarísku stjörnunnar þetta kvöld og birtust meðal annars myndir af henni í settinu á vef Vogue.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×