Menning

Lögmaður Bubba fundaði með útvarpsstjóra

Jakob Bjarnar skrifar
Bubbi og Auður sendu frá sér lag nýverið en vinsældir þess hafa verið gríðarlegar, nema á Rás 2 þar sem lagið heyrist nánast ekki. Ýmsum þykir það skjóta skökku við.
Bubbi og Auður sendu frá sér lag nýverið en vinsældir þess hafa verið gríðarlegar, nema á Rás 2 þar sem lagið heyrist nánast ekki. Ýmsum þykir það skjóta skökku við. Vignir Daði Valtýsson

Sölvi Blöndal, framkvæmdastjóri Öldu Music og Einar Þór Sverrisson lögmaður Bubba Morthens, fóru á fund Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra og kröfðust svara við því hvers vegna lag Bubba og Auðar Tárin falla hægt heyrðist varla á Rás 2.

Lagið hefur slegið rækilega í gegn og hefur nú verið í heilan mánuð á toppi lista yfir íslensk lög sem mest eru spiluð á Spotify. Það mun vera met og stefnir í að fá íslensk dægurlög lög hafi notið viðlíkra vinsælda. Lagið hefur hins vegar lítið heyrst á tónlistarríkisrásinni Rás 2 og ekki sést þar á neinum listum.

Hvort Atli Már hafi staðið í vegi fyrir spilun lagsins

Eftir því sem Vísir kemst næst vildu þeir Einar Þór og Sölvi fá svör við því hvernig þetta megi vera? Og hvort ástæðuna megi ef til vill rekja til þess að Atli Már Steinarsson dagskrárgerðarmaður Ríkisútvarpsins hafi hlutast til um að lagið sé ekki spilað? 

Atli Már hefur haft sig í frammi á Twitter og sakað Bubba Morthens um gerendameðvirkni en kærasta hans er ein þeirra sem stigið hafa fram og sakað Auð um kynferðisofbeldi í samtali við Eddu Falak, hlaðvarpsstjóra og blaðamann Stundarinnar.

Ábendingar hafa borist Vísi þess efnis að Atli Már hafi ekki verið við stjórnvölinn eins og venjulega með tónlistarþátt sinn Atli það ekki síðastliðinn laugardag, heldur hljóp Birgir Örn Steinarsson þá í skarðið.

Matthías Már dagskrárstjóri segir ekkert samhengi milli fundar útgefanda og lögmanns Bubba með útvarpsstjóra og þess að Atli Már var ekki við stjórnvölinn í þætti sínum Atli það ekki síðastliðinn laugardag. Atli sé í löngu ráðgerðu fjölskyldufríi á Bretlandseyjum.rúv

Matthías Már Magnússon er dagskrárstjóri Rásar 2 og hann hafnar því alfarið í samtali við Vísi að Atli Már hafi verið settur á ís eftir téðan fund. Hann sé í fjölskyldufríi á Bretlandseyjum og það hafi verið löngu ákveðið. „Hann vissi ekkert um þennan lögfræðihitting,“ segir Matthías Már.

Lagið fór á C-lista

Þá hafnar Matthías Már því að lagið Tárin falla hægt hafi verið útilokað, það hafi farið á spilunarlista og verið kynnt í þættinum Popplandi eins og önnur ný íslensk lög. Spurður segir hann það rétt að lagið hafi farið á svokallaðan C-lista sem þýðir að lagið heyrist ekki oft og á tímum þegar hlustun á stöðina er í lágmarki.

„Það er rétt hjá þér, það er ósamræmi milli spilunar lagsins á Spotify og svo á Rás 2,“ segir Matthías. En fyrir því séu ástæður svo sem þær að á Rás 2 sé lagt upp úr að spila fleiri lög en færri.

Matthías Már dagskrárstjóri Rásar 2 segir það rétt, misræmi sé milli vinsælda lagsins á Spotify og svo spilunar lagsins á Rás 2 en fyrir því séu margar ástæður.rúv

„Það má vel vera að Bubba finnist skrítið að við höfum ekki spilað þetta eins mikið og aðrar útvarpsstöðvar. En við spilum fleiri titla sjaldnar, það er gefið út ógrynni af tónlist og það hefur verið taktík Rásar 2 að spila frekar mörg lög en fá. Við viljum setja fleiri lög á dagskrá og kynna meira,“ segir Matthías Már. 

Hann segir jafnframt að þar á bæ sé ekki tekið mið af Spotify; þeir gerðu þá varla mikið annað en að spila lög sem ná máli þar. Ógrynni af íslenskri tónlist sé gefin út og lagt sé upp með að kynna hana. „Það eru milljón lög sem gera gott mót á Spotify sem við spilum lítið sem ekkert.“

Sölvi Blöndal, framkvæmdastjóri Öldu Music mætti til fundar við útvarpsstjóra ásamt Einari Sverrissyni, lögmanni Bubba.Aðsend

Þá bendir dagskrárstjórinn á að Rás 2 sé einnig talmálsstöð og dagskrárgerðarfólk ráði mikið til því hvaða tónlist er spiluð. Matthías Már segir, hvað varði hlut Atla Más, þá sé það svo að hann sé ekki og hafi aldrei verið í tónlistarráði Rásar 2.

„Það er vissulega rétt að hann kom að máli við mig áður en lagið kom út og hafði sínar skoðanir á því. En hann sagði líka, í viðurvist vitnis, að hann væri líklega vanhæfur til að tjá sig um það.“

Vísir setti sig í samband við Bubba Morthens vegna þessa en hann vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu máli.


Tengdar fréttir

Jón Jóns­son og Auður gefa út lag sem þeir sömdu ó­vart

Tónlistarmennirnir Jón Jónsson og Auður gáfu í dag út sitt fyrsta lag saman. Lagið ber heitið Ég var ekki þar og var það samið alveg óvart fyrir tólf dögum síðan. Þeim fannst lagið passa vel inn í haustið og ákváðu þeir þess vegna að hafa hraðar hendur við útgáfu þess.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×