Morata skaut Spánverjum í undanúrslit Þjóðadeildarinnar

Alvaro Morata reyndist hetja Spoánverja.
Alvaro Morata reyndist hetja Spoánverja. Octavio Passos/Getty Images

Portúgalar sátu í toppsæti riðilsins fyrir leikinn með tveggja stiga forskot á Spánverja og því var ljóst að jafntefli myndi duga þeim til sigurs í riðlinum.

Spánverjar áttu hins vegar í hættu á að falla niður í þriðja sæti riðilsins ef þeim myndi mistakast að vinna í kvöld og ef Svisslendingar myndu vinna sinn leik gegn Tékkum.

Þrátt fyrir að vera mun meira með boltann og eiga fleiri skot að marki tókst Spánverjum virtist Spánverjum ekki ætla að takast að koma boltanum í netið. Það breyttist þó á 88. mínútu þegar Alvaro Morata fann netmöskvana eftir stoðsendingu frá Nico Williams.

Niðurstaðan því 0-1 sigur Spánverja sem eru á leið í undanúrslit Þjóðadeildarinnar, en Portúgalar sitja eftir með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira