Fótbolti

„Getum loksins farið að einbeita okkur að þessum leik á þriðjudaginn“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir skoraði fjórða mark Íslands í kvöld.
Glódís Perla Viggósdóttir skoraði fjórða mark Íslands í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Glódís Perla Viggósdóttir gat leyft sér að brosa eftir öruggan 6-0 sigur Íslands gegn Hvíta-Rússlandi í kvöld. Glódís skoraði fjóra mark Íslands og segir leikinn gott veganesti í leikinn gegn Hollendingum.

„Mér fannst við mæta ótrúlega grimmar og ákveðnar í þennan leik Fyrstu 30 mínúturnar erum við að vinna alla fyrstu og aðra bolta og náum að keyra yfir þær og skora þessi tvö mörk tiltölulega snemma,“ sagði Glódís Perla að leik loknum.

„Eftir það var kannski ekki mikið fyrir þær úr að moða, en að sama skapi þá fannst mér við klára leikinn á ótrúlega háu tempói. Við höldum bara áfram og klárum þennan leik gríðarlega vel.“

„Það getur alveg gerst í svona leik þegar andstæðingurinn er búinn að pakka í vörn að maður missi niður tempóið og fari svolítið að spila í kringum þær. En mér fannst við gera ótrúlega vel að halda áfram að vera með tempó og keyra á þær þegar við komumst í svæðin sem við vissum að væru opin.“

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska landsliðsins, gerði nokkrar breytingar á liðinu í kvöld. Hinar ungu Amanda Andradóttir og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir fengu tækifærið og Glódís hrósaði þeim fyrir sitt framlag.

„Þær stóðu sig gríðarlega vel. Mér fannst Amanda eiga flottan leik og hún er svo „X-factor“ leikmaður sem getur gert óvænta hluti. Hún er frábær með boltann og það er eitthvað sem er gríðarlega sterkt fyrir lið eins og okkar að vera með svona leikmann eins og hana. Hún er bara að þroskast inn í þetta hlutverk gríðarlega vel og hún sýndi það bara í dag að hún getur vel byrjað svona leik. Það verður gaman að fylgjast með henni.“

„Sama með Mundu. Hún er búin að vera að glíma við meiðsli og veikindi og allskonar bras á henni, en mér fannst hún spila ótrúlega vel í dag og hún gefur okkur líka þennan sóknarleik sem okkur hefur vantað. Okkur hefur saknað að fá bakverðina okkar hærra upp á völlinn og í dag var það bara ótrúlega vel gert hjá þeim báðum. Þær náðu ótrúlega vel saman.“

Amanda skoraði einmitt í kvöld það sem hún hélt að hafi verið sitt fyrsta landsliðsmark. Það var hins vegar dæmt af vegna ragnstöðu, en ekki eru þó allir vissir um það að um réttan dóm hafi verið að ræða.

„Ég skil ekki ennþá af hverju þetta var ekki mark, en ég er ekki dómari. Hún átti skilið að fá þetta mark og það hefði verið gaman fyrir hana. Það kemur vonandi bara á þriðjudaginn,“ sagði Glódís.

Næsti leikur Íslands er hreinn úrslitaleikur gegn Hollendingum um sæti á HM á næsta ári. Íslenska liðið hefur mikið talað um að ekki hafi einu sinni verið minnst á þann leik í aðdraganda leiksins í kvöld, en nú hlýtur staðan að vera önnur.

„Við sögðum það strax að við yrðum að klára þennan leik og við ætluðum að gera það með góðri frammistöðu. Þá förum við inn í þriðjudagsleikinn með meira sjálfstraust og okkur líður betur. Það er gaman að fá sigurleik eftir EM og svona sigurfílinginn inn í hópinn.“

„Nú getum við loksins farið að einbeita okkur að þessum leik á þriðjudaginn sem verður algjör hörkuleikur og algjör úrslitaleikur fyrir okkur.“

„Það er markmiði okkar [að tryggja HM-sætið á þriðjudaginn] og við ætlum ekkert í felur með það að okkur langar beint á HM. Þannig við förum í þennan leik á þriðjudaginn til að vinna, en við erum að fara að spila við ótrúlega sterkt lið Hollands sem ætlar sér líka beint á HM. Þannig þetta verður mikil barátta,“ sagði Glódís að lokum.

Klippa: Glódís eftir sigurinn gegn Hvít-Rússum

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×