Innlent

Biðla til lands­manna að standa með í­búum Blönduóss

Árni Sæberg skrifar
Forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar átti, eðli málsins samkvæmt, erfitt með að láta tilfiningarnar ekki bera sig ofurliði þegar hann las upp yfirlýsingu sveitarstjórnar.
Forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar átti, eðli málsins samkvæmt, erfitt með að láta tilfiningarnar ekki bera sig ofurliði þegar hann las upp yfirlýsingu sveitarstjórnar. Vísir

Sveitarstjórn Húnabyggðar hefur gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem segir að íbúar Húnabyggðar séu í áfalli eftir að skotárás var framin í bænum í morgun. „Við erum brotin og þiggjum alla þá góðu strauma sem þið getið veitt okkur,“ segir forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar.

Einn lést og annar særðist í skotárás sem framin var í heimahúsi á Blönduósi á sjötta tímanum í morgun. Sá sem framdi árásina fannst einnig látinn á vettvangi.

Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar, las upp yfirlýsingu sveitarstjórnar fyrir hönd allra íbúa Húnabyggðar fyrir fjölmiðla rétt í þessu. Hann vottar öllum hlutaðeigandi samúð sína.

„Við erum enn þá að vinna úr því að þetta hafi raunverulega gerst. Hugur allra íbúa Húnabyggðar er hjá þeim látnu, hlutaðeigandi og aðstandendum þeirra sem tengjast þessum hræðilega atburði. Samfélagið er í einhvers konar áfalli og alli reru að reyna að ná utan um þessa atburði og þæ tilfinningar sem þeim fylgja,“ segir Guðmundur.

Hann segir að í litlu samfélagi á borð við Blönduóss séu allir kunningjar, vinir og eða ættingjar að atburður sem sá sem varð í morgun risti djúpt í samfélaginu.

Lokaður upplýsingafundur í kvöld

Guðmundur segir að klukkan 20 í kvöld verði haldinn lokaður upplýsingafundur fyrir íbúa Húnabyggðar í félagsheimilinu á Blöndósi. Í tilkynningu sveitarfélagsins á Facebook segir að séra Magnús Magnússon muni stýra fundinum og Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, muni fara yfir málsatvik að því leyti sem unnt er.

Lögreglan á Norðurlandi vestra gaf rétt í þessu frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að rannsókn málsins standi yfir og sé á forræði lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og vegna rannsóknarhagsmuna muni lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra, eðli máls samkvæmt, ekki veita upplýsingar um hana.

Að upplýsingafundi loknum verður haldin bænastund í kirkjunni á Blönduósi.Vísir

Sveitarstjórn biðlar til fjölmiðla að veita samfélaginu svigrúm til að vinna með þær sterku tilfinningar sem fylgja svona áfalli.

Dökk ský yfir Húnabyggð

Sveitarstjórn Húnabyggðar biðlar til landsmanna að standa við bakið á íbúum Húnabyggðar og að hugsa vel til þeirra sem atburðinum tengjast. „Það eru dökk ský yfir okkur núna en með ykkar hjálp komumst við í gegnum þetta saman,“ segir Guðmundur.

Þá leggur sveitarstjórn áherslu á við alla sem eiga um sárt að binda að Rauði krossinn á Íslandi sinni fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi. Sími Rauða krossins, 1717, sé opinn allan sólarhringinn.

Við í sveit­ar­stjórn­inni vilj­um gefa út op­in­bera tilkynningu vegna þess vo­veif­lega at­b­urðar sem gerðist á Blönduósi að morgni sunnu­dags 21. ág­úst. Við mun­um að svo stöddu ekki gefa kost á okk­ur í opin viðtöl en ég mun hér með lesa sam­eig­in­lega yf­ir­lýs­ingu fyr­ir hönd allra í sam­fé­lag­inu.

Íbúar svæðis­ins eru harmi slegn­ir og við erum ennþá að vinna úr því að þetta hafi raun­veru­lega gerst.

Hug­ur allra íbúa Húna­byggðar er hjá þeim látnu, hlutaðeig­andi og aðstand­end­um þeirra sem tengj­ast þess­um hræðilega at­b­urði. Sam­fé­lagið er í ein­hvers­kon­ar áfalli og all­ir eru að reyna ná utan um þessa at­b­urði og þær til­finn­ing­ar sem þeim fylgja. Í litlu sam­fé­lagi eins og okk­ar eru all­ir kunn­ingj­ar, vin­ir og/​eða ætt­ingj­ar og at­b­urður sem þessi rist­ir sam­fé­lagið djúpt.

Lokaður upp­lýs­inga­fund­ur lög­regl­unn­ar og annarra viðbragðsaðila fyr­ir íbúa svæðis­ins verður hald­inn í Fé­lags­heim­il­inu á Blönduósi klukk­an 20. Að þeim fundi lokn­um verður boðið upp á sál­ræn­an stuðning og sam­veru i Blönduós­kirkju.

Sveit­ar­stjórn bein­ir þeirri ósk til fjöl­miðla að sýna því skiln­ing að sam­fé­lagið er í sár­um og þarf svig­rúm til að vinna með þær sterku til­finn­ing­ar sem fylgja svona áfalli. Rétt er að árétta að all­ar tækni­leg­ar upp­lýs­ing­ar um máls­at­vik eru á borði lög­regl­unn­ar sem sér um upp­lýs­inga­gjöf vegna máls­ins.

Við biðlum til lands­manna allra að standa með okk­ur á þess­um erfiðu tím­um, við erum brot­in og þiggj­um alla þá góðu strauma sem þið getið veitt okk­ur. Eins ósk­um við þess að þið hugsið vel til þeirra sem þess­um at­b­urði tengj­ast. Það eru dökk ský yfir okk­ur núna en með ykk­ar hjálp komust við í gegn­um þetta sam­an.

Við leggj­um áherslu á við alla sem eiga um sárt að binda a Rauði kross­inn á Íslandi sinn­ir fjölda­hjálp og fé­lags­legu hjálp­ar­starfi og sími þeirra 1717 er op­inn all­an sól­ar­hring­inn.

Með vin­semd og virðingu,

sveit­ar­stjórn og sveit­ar­stjóri.


Tengdar fréttir

Á­rásar­manninum banað á vett­vangi

Lögreglan á Norðurlandi vestra segir að svo virðist sem manninum, sem skaut einn til bana og særði annan á Blönduósi í dag, hafi verið banað á vettvangi morðsins. Tveir eru í haldi lögreglu.

Árásarmaðurinn handtekinn fyrr í sumar vegna hótana með skotvopn

Árásarmaðurinn, sem skaut einstakling til bana á Blönduósi í morgun og lést svo sjálfur af skotsárum, hafði verið handtekinn fyrr í sumar af lögreglunni á Blönduósi. Þetta herma heimildir fréttastofu. Maðurinn hafði þá í hótunum með skotvopn og var í kjölfarið tekinn höndum. Síðar var honum sleppt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×