Fótbolti

Þorsteinn skýrir valið á EM-hópnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Íslenska landsliðið kemur saman til æfinga 20. júní en fyrsti leikur á EM er 10. júlí.
Íslenska landsliðið kemur saman til æfinga 20. júní en fyrsti leikur á EM er 10. júlí. vísir/vilhelm

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari hefur valið landsliðshópinn sem leikur á Evrópumóti kvenna í fótbolta í Englandi í næsta mánuði. Hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í beinni textalýsingu á Vísi.

Ísland hefur keppni á EM 10. júlí með leik við Belgíu í Manchester. Liðið mætir svo Ítalíu á sama stað 14. júlí og lokaleikurinn í riðlakeppninni er gegn Frakklandi 18. júlí.

Blaðamannafundur Þorsteins í höfuðstöðvum KSÍ var í beinni textalýsingu á Vísi og má sjá það helsta sem fram fór á fundinum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×