Menning

Rauði þráðurinn er hundur að skíta

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Þorvaldur Jónsson opnar sýninguna Hundurinn er til staðar í NORR11 í dag.
Þorvaldur Jónsson opnar sýninguna Hundurinn er til staðar í NORR11 í dag. Aðsend

Listamaðurinn Þorvaldur Jónsson (f.1984) opnar sýninguna Hundurinn er til staðar í NORR 11 í dag klukkan 16:00. Sýningin er unnin með Listval og rauður þráður sýningarinnar er hundur að skíta. Blaðamaður hafði samband við Þorvald og fékk að forvitnast um sýninguna.

Þorvaldur hefur tekið þátt í fjölda sýninga hér heima sem og erlendis og hafa verk hans verið sýnd víðs vegar um landið. Ásamt því að starfa sem myndlistarmaður er Þorvaldur einn af stofnendum Gallery Ports á Laugavegi.

Eins konar sögusvið

Verk Þorvaldar búa yfir ævintýralegum blæ og segja má að þau séu eins konar sögusvið þar sem ýmsar atburðarrásir eiga sér stað á striganum. Má til dæmis sjá nakið fólk í hringdans, bófa sem er búinn að týna þýfinu sínu og málara sem stigið hafa í málningu og spora allt út eftir sig.

„Helsti innblásturinn er örugglega Hvar er Valli bækurnar,“ segir Þorvaldur og bætir við: „Þá er ég ekki að tala um myndefnið heldur það að skapa sögusvið með einhverjum óljósum atburðarásum. Titlar verkana koma svo frá hlutum innan myndflatarins þannig að það er smá leikur í því að finna hlutinn sem myndin dregur nafn sitt af.“

Verk Þorvaldar eru eins konar sögusvið.Aðsend

Rauði þráður þessarar sýningar er þó hundar að skíta.

„Við fengum okkur hund fyrir um ári síðan og núna snýst allt um hann aðallega þegar maður er heimavinnandi. Dagurinn fer bara í að mála og fara út með hundinn svo að hann nái að gera þarfir sínar.“

Kúkandi hundur og berskjöldun

Titill sýningarinnar er vísun í verkið The Artist Is Present þar sem höfundurinn, Marina Abramović, sat gegnt gestum sýningarinnar og starði í augun á þeim. Þessi gjörningur hafði þau áhrif að margir gestir upplifðu einlægt augnablik með listakonunni, sumir brotnuðu jafnvel niður og grétu.

Í fréttatilkynningu stendur að á sama hátt sé eitthvað mjög einlægt við að horfa í augun á kúkandi hundi, hann algjörlega berskjaldaður og óvarinn. Augnablik sem vert er að fanga.

Sýningin stendur til 9. ágúst, 2022.


Tengdar fréttir

„Myndlist er svo fjölbreytt og víðfeðm“

Listval stendur að myndlistarsýningunni Mens et Manus sem opnaði á síðastliðinn föstudaginn við hátíðlega athöfn í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Er sýningin sú fyrsta í röð sýninga sem Listval mun setja upp í sendiráðinu. Blaðamaður tók púlsinn á Helgu Björg Kjerúlf og Elísabetu Ölmu Svendsen, eigendum og stjórnendum Listvals.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×