Tíska og hönnun

Rólur og húsgögn á Austurhöfn

Helgi Ómarsson skrifar
cover-1

Við heimsóttum Studio Austurhöfn beint eftir opnunarhóf HönnunarMars í Hörpunni en um er að ræða glæsilegt sýningarrými og vinnustofu.

„Hluti-af-heild“ er af sýningunum þar í bæ eftir Rögnu Ragnarsdóttur. 

 Á sýningunni „Hluti-af-heild“ mætast fagurfræði og notagildi í nýjum og eldri verkum Rögnu en á sýningunni sýndi hún húsgögn, heimilisvörur og skúlptúra.

Anna Þórunn vöruhönnuður lét sig ekki vanta á hátíðina en hún mætti með látum og sýndi róluna Freedom á Austurhöfninni. 

Rólan er án efa með þeim fallegri sem fyrir finnast en hugmyndin af rólunni var einmitt tíska, glamúr, fortíðarþrá og frelsi hugans til óendanlegar sköpunar.

Glæsilegt rýmiHelgi Omars
Anna Þórunn hönnuður með verki sínuHelgi Omars
Hönnuðurinn Ragna Ragnarsdóttir meðal gestaHelgi Omars
Rut Kára lét sig ekki vanta á Studio AusturhöfnHelgi Omars
Glæsilegar
Studio AusturhöfnHelgi Omars
Hönnuðirnir sem sýndu á Studio Austurhöfn, Anna Þórunn og Ragna RagnarsHelgi Omars

HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar

Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  

Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022


Tengdar fréttir

HönnunarMars settur í Hörpu með lúðrablæstri

Hátíðin, sem í ár fer fram í fjórtánda sinn, var sett með pompi og prakt í Hörpu í gær. Hátíðina settu Þórey Einarsdóttir, stjórnanda HönnunarMars, Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóra Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs ásamt Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×