„Mig hefur lengi langað að stækka vöruúrvalið og töskur voru alltaf það sem heillaði mig mest á eftir skóm. Maður er að búa til ákveðin heim þegar maður er með vörumerki og með því að stækka vörulínuna nær maður að dýpka þann heim,“ segir Katrín í samtali við Vísi.

Innblástur Katrínar byggði hún á tilfinningunni sem fólk ætti eftir að upplifa með þær.
„Töskur hafa alltaf haft mikið tilfinningalegt vægi, örugglega eina varan sem trompar skó í þeim málum - svo það var eini innblásturinn í raun - hvernig ég gæti látið fólki líða á ákveðin hátt - bara með tösku,“
Tvö ár í þróun
„Þetta var miklu erfiðari ferli en ég hélt og tók næstum tvö ár í þróun. Þó svo að töskurnar tilheyri alveg sama heim og skórnir þá þarf maður aðeins að finna sína rödd upp á nýtt þegar maður byrjar á nýrri vörulínu. Svo þetta tók tíma - en það var líka engin að flýta sér.“ Segir Katrín Alda að lokum.

Línan verður frumsýnd í sýningarrými KALDA í Grandagarði 79 á föstudaginn 6 maí frá 16:00 - 18:00.