Kallaði eigin leikmenn karríætur og sjálfsmorðssprengjumenn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2022 09:31 John Yems er sakaður um að kynþáttaníða eigin leikmenn. getty/Pete Norton Crawley Town, sem er í 12. sæti ensku D-deildarinnar, hefur sent knattspyrnustjórann John Yems í leyfi meðan rannsókn enska knattspyrnusambandsins á kynþáttafordómum hans í garð eigin leikmanna stendur yfir.
Daily Mail greinir frá því að Yems hafi beitt ýmsa leikmenn Crawley kynþáttafordómum. Hann kallaði asíska leikmenn liðsins meðal annars sjálfsmorðssprengjumenn, hryðjuverkamenn og karríætur. Yems sagði einnig einum ungum leikmanni að hann ætti að forðast að vera með bakpoka í lestinni á leið heim af æfingu því aðrir farþegar gætu haldið að hann myndi sprengja sig, og þá, í loft upp. Yems sagði ennfremur hörundsdökkum leikmönnum Crawley að nota annan búningsklefa en aðrir leikmenn liðsins og bannaði tveimur leikmönnum af minnihlutahópi að æfa án nokkurar ástæðu. Þá notaði hann n-orðið ítrekað, kallaði ungan svartan leikmann Zulu-stríðsmann og gerði grín að leikmanni af kýpverskum ættum. Sjö leikmenn Crawley kvörtuðu undan framkomu Yems. Skömmu síðar settu bandarískir eigendur félagsins hann til hliðar. Yems hafnar ásökunum en neitaði að tjá sig um málið þegar Daily Mail leitaði eftir því. Hinn 62 ára Yems hefur stýrt Crawley síðan í desember 2019. Liðið hefur tapað öllum þremur leikjum sínum síðan hann var sendur í leyfi.
Enski boltinn Kynþáttafordómar Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira