Fótbolti

Sara gagnrýnir gestgjafa EM: „Veit ekki hvað er í gangi í hausnum á þeim“

Sindri Sverrisson skrifar
Akademíuleikvangur Manchester City lætur ekki mikið yfir sér. Sara Björk Gunnarsdóttir vill að glæsilegri leikvangar séu notaðir í lokakeppni EM.
Akademíuleikvangur Manchester City lætur ekki mikið yfir sér. Sara Björk Gunnarsdóttir vill að glæsilegri leikvangar séu notaðir í lokakeppni EM. Getty

Sara Björk Gunnarsdóttir segir að gestgjafar Evrópumótsins í fótbolta í sumar virðist ekkert vera að fylgjast með því sem sé í gangi í knattspyrnu kvenna í heiminum. Hún segir vanvirðingu fólgna í því á hvaða völlum Ísland spili sína leiki.

Sara tjáir sig um þetta í hlaðvarpsþættinum Their Pitch. Þar segir hún Íslendinga sannarlega spennta fyrir því að fara á stórmót á Englandi enda með sterka tengingu við enska boltann. Hins vegar sé grátlegt að Ísland mæti þar bæði Ítalíu og Belgíu á akademíuleikvangi Manchester City.

Akademíuleikvangurinn tekur aðeins 4.700 manns í sæti, samkvæmt heimasíðu UEFA, og að sjálfsögðu er orðið uppselt á báða leikina þó að EM hefjist ekki fyrr en í júlí. Þriðji leikur Íslands er svo í Rotherham, gegn Frakklandi, en sá leikvangur tekur 11.000 manns í sæti.

„Ég er svolítið vonsvikin með leikvangana sem við fengum. Það er átakanlegt að með alla þessa leikvanga sem eru í boði á Englandi þá séum við á æfingavelli Manchester City sem tekur um 4-5.000 áhorfendur. Þetta er vandræðalegt,“ segir Sara Björk.

„Maður sér í kvennafótboltanum í dag hvernig er verið að fylla stóru leikvangana. Það mættu 95.000 manns á Barcelona – Real Madrid. Það er vandræðalegt að menn búist ekki við því að það seljist fleiri en 4.000 miðar. Þetta er vanvirðing gagnvart kvennafótbolta á þessu stigi því þetta er svo mikið stærra en fólk heldur.

Manni finnst við alltaf vera að taka tvö skref fram á við en svo kemur eitthvað svona sem tekur okkur aftur á bak. En það verða leikir á stórum leikvöngum á mótinu og ég er viss um að það verður uppselt. Kvennafótboltinn er að springa út og fá þá virðingu sem fótboltinn á skilið. Það er meiri peningur í kvennafótboltanum núna, meiri fjárfesting, og þetta er á réttri leið,“ segir Sara í Their Pitch.

Telur að 20.000 Íslendingar myndu vilja koma

Stjórnandi þáttarins bendir þá á að karlalandsliðum yrði aldrei boðið upp á að spila á 4.700 manna leikvangi á stórmóti og Sara ítrekar óánægju sína með skipuleggjendur mótsins:

„Ég veit ekki hvað er í gangi í hausnum á þeim eða hvort þeir eru bara yfirhöfuð eitthvað að fylgjast með því sem er í gangi í kvennafótbolta. Ef að menn gerðu það þá væri bara almenn skynsemi að hafa hlutina öðruvísi. Það er bara vitleysa að þurfa að tala um þetta. Það er svekkjandi. Það gætu hæglega komið 20.000 manns frá Íslandi til að horfa á leikina. Fjölskyldumeðlimir áttu erfitt með að fá miða því þeir seldust bara strax upp,“ segir Sara og tekur undir að skoða ætti að færa leikina á stærri leikvanga þar sem að enn sé tími til stefnu.


Tengdar fréttir

„Finnst þetta vanvirðing og alveg galið“

Glódís Perla Viggósdóttir tekur undir gagnrýni á UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, vegna þeirra leikstaða sem urðu fyrir valinu á EM í Englandi næsta sumar.

Fyrirliði Svía tekur undir gagnrýni Þorsteins

Ísland og Svíþjóð spila á tveimur minnstu leikvöngunum á EM kvenna í fótbolta næsta sumar. Ekki eru allir á eitt sáttir við það að spilað sé á leikvöngum sem aðeins rúma nokkur þúsund manns. Karl-Erik Nilsson, varaforseti UEFA, segir hægt að skoða það að skipta um velli.

Þorsteinn segir völlinn í Manchester of lítinn

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, sat fyrir svörum eftir að ljóst var að Ísland verður í D-riðli með Frökkum, Ítölum og Belgum á EM sem fram fer í Englandi næsta sumar. Hann segir að hann telji að liðið eigi ágætis möguleika á að komast upp úr riðlinum, en að fyrsti leikur liðsins fari fram á of litlum velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×