Albert spilaði tuttugu mínútur í tapi gegn toppliðinu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Junior Messias kláraði dæmið fyrir AC Milan í kvöld.
Junior Messias kláraði dæmið fyrir AC Milan í kvöld. vísir/Getty

Albert hóf leik á varamannabekk Genoa.

Rafael Leao kom heimamönnum í AC Milan á bragðið strax á 11.mínútu þegar hann skoraði eftir undirbúning Pierre Kalulu. 

Alberti var skipt inná á 72.mínútu en þá var staðan enn 1-0.

Það var hins vegar einn af varamönnum heimamanna, Junior Messias, sem gerði út um leikinn og tryggði AC Milan 2-0 sigur og þar með toppsætið í deildinni.

Albert og félagar áfram þremur stigum frá öruggu sæti og eiga nú aðeins eftir fimm leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira