Tíu leikmenn Frankfurt héldu út gegn Barcelona

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Barcelona og Frankfurt gerði 1-1 jafntefli í kvöld.
Barcelona og Frankfurt gerði 1-1 jafntefli í kvöld. Alex Grimm/Getty Images

Barcelona náði ekki að nýta sér liðsmuninn er liðið heimsótti Frankfurt í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Lokatölur urðu 1-1, en liðin mætast á ný að viku liðinni á Spáni.

Enn var markalaust að fyrri hálfleik loknum, en sá síðari var ekki nema tæplega þriggja mínútna gamall þegar fyrsta markið leit dagsins ljós. Þar var á ferðinni Ansgar Knauff þegar hann kom Frankfurt í forystu með góðu skoti fyrir utan teig.

Ferran Torres náði þó að koma boltanum í netið fyrir Börsunga á 66. mínútu eftir stoðsendingu frá Frenkie de Jong og allt orðið jafnt á ný.

Heimamenn í Frankfurt komu sér svo í vesen á 78. mínútu þegar Tuta fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Hann fékk því að fara snemma í bað, en liðsfélagar hans þurftu að leika manni færri seinustu tólf mínútur leiksins.

Börsungum tókst hins vegar ekki að nýta sér liðsmuninn og niðurstaðan varð 1-1 jafntefli. Þrátt fyrir að Börsungum hafi mistekist að vinna geta þeir þó huggað sig við það að liðið er nú taplaust í seinustu 14 leikjum sínum.

 Eins og áður segir mætast liðin á nýjan leik að viku liðinni á Spáni og þá kemur í ljós hvort liðið tryggir sér sæti í undanúrslitum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira