Tíska og hönnun

Romeo Beckham í herferð Ami Paris og Puma

Helgi Ómarsson skrifar
Romeo og Mia Regan eru saman í nýrri herferð samstarfsverkefni Ami Paris og Puma
Romeo og Mia Regan eru saman í nýrri herferð samstarfsverkefni Ami Paris og Puma Getty/Samir Hussein

Romeo Beckham og kærasta hans Mia Regan sátu fyrir á dögunum í herferð fyrir Ami Paris og Puma en merkin sameinuðu krafta sína í glænýrri samstarfslínu.

Á Instagram lýsir Romeo ánægju sinni á útkomu herferðarinnar og birti mynd af strætó í London þar sem andlit hans hylur stóran part vagnsins og skrifaði undir „Þetta er svo sjúkt!“

Byrjaði tólf ára

Þetta er ekki fyrsta dýfa kappans í fyrirsætustörfum en hann var aðeins tólf ára gamall þegar hann varð aðal fyrirsæta Burberry sem margir muna eflaust eftir. Sú herferð var mynduð af Mario Testino og vakti mikla athygli á sínum tíma þar sem sala merkisins rauk upp í kjölfarið.

Segja má að Romeo sé áberandi í tískuheiminum um þessar mundir, en hann sat einnig fyrir í vetrarlínu YSL, herferð fyrir Canada Goose ásamt því að skartað forsíðu L‘uomo Vogue og GQ Korea.

Ami Paris x Puma 

Samstörf hönnuða og stórra merkja hafa verið vinsæl síðust ár og hefur skilað mikilli ánægju neytenda. Merki eins og Gucci og The North Face, Fendi og Skims og Tiffany & Co og Supreme hafa öll sameinað krafta sína og skapað saman glænýjar línur sem ruku út.

Romeo spilar fótbolta með Inter Milan og skartar hinum ýmsu hárgreiðslum og er duglegur að breyta til. Hann er eftirsóttur innan tískugeirans og segja má að hann sé að feta vel í fótspor föður síns og lítur allt út fyrir að hann sé hvergi nærri hættur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×