Innlent

Listi Sam­fylkingar sam­þykktur og Dagur segir hann sigur­strang­legan

Smári Jökull Jónsson skrifar
Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavík. Aðsend

Listi Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í maí var samþykktur einróma á fundi fulltrúaráðs flokksins í dag. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir listann sigurstranglegan.

Dagur leiðir listann en hann varð efstur í flokksvali flokksins sem haldið var í febrúar. Heiða Björg Hilmisdóttir, Skúli Helgason og Sabine Leskopf borgarfulltrúar sitja í næstu sætum og Guðný Maja Riba kemur ný inn í 5.sæti listans.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að á listanum sé fólk af fjölbreyttum sviðum samfélagsins, fólk með reynslu af stjórn borgarinnar í bland við nýtt fólk.

„Listinn er sigurstranglegur, hann er þéttskipaður fólki úr öllum áttum sem elskar Reykjavík og vill halda áfram að sækja fram og þróa borgina sem græna, fjölbreytta borg með öflugri þjónustu þar sem hugað er að velferð og tækifærum til framtíðar og pláss er fyrir alla,“ segir Dagur í tilkynningu sem Samfylkingin sendi frá sér nú undir kvöld.

Hér má sjá listann í heild:

1. Dagur B. Eggertsson læknir og borgarstjóri

2. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar

3. Skúli Þór Helgason, borgarfulltrúi

4. Sabine Leskopf, borgarfulltrúi

5. Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi

6. Guðný Maja Riba, kennari

7. Sara Björg Sigurðardóttir, Breiðhyltingur og stjórnsýslufræðingur

8. Birkir Ingibjartsson, arkítekt

9. Ellen Calmon, borgarfulltrúi og fyrrverandi formaður ÖBÍ

10. Ragna Sigurðardóttir, unglæknir og borgarfulltrúi

11. Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara

12. Aron Leví Beck, myndlistarmaður og málarameistari

13. Alondra Silva Muñoz, markaðsstjóri

14. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, lögfræðingur

15. Ólöf Helga Jakobsdóttir, matreiðslumeistari

16. Stein Olav Romslo, grunnskólakennari

17. Berglind Eyjólfsdóttir, formaður öldungaráðs Reykjavíkur

18. Þorleifur Örn Gunnarsson, kennari

19. Thomasz Chrapek, tölvunarfræðingur og formaður ProjektPolska.is

20. Elva María Birgisdóttir, forseti Nemendafélags MH

21. Davíð Sól Pálsson, deildarstjóri á leikskóla

22. Valgerður Gréta G. Gröndal, bókmenntafr. og deildarstjóri á leikskóla

23. Brandur Bryndísarson Karlsson, frumkvöðull og framtíðarfræðingur

24. Aðalheiður Franzdóttir, framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur

25. Örn Kaldalóns Magnússon, formaður DM félags Íslands

26. Hjördís Sveinsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun

27. Ingiríður Halldórsdóttir, öryrki

28. Geoffrey Huntington-Williams, veitingamaður og tónlistarstjóri

29. Elísabet Unnur Gísladóttir, háskólanemi

30. Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri Íshokkísambands Íslands

31. Frigg Thorlacius, lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun

32. Sigfús Ómar Höskuldsson, rekstrarfræðingur og knattspyrnuþjálfari

33. Ragnhildur Berta Bolladóttir, verkefnastjóri hjá Sjúkraliðafélagi Íslands

34. Rúnar Geirmundsson, framkvæmdastjóri

35. Ingibjörg Grímsdóttir, kjaramálafulltrúi hjá Eflingu

36. Jódís Bjarnadóttir, sérfræðingur í málefnum flóttafólks

37. Þóroddur Þórarinsson, þroskaþjálfi

38. Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar og kaospilot

39. Margrét Pálmadóttir, söngkona

40. Hákon Óli Guðmundsson, rafmagnsverkfræðingur

41. Barbara Bruns Kristvinsson, ráðgjafi í málefnum innflytjenda

42. Gísli Víkingsson, sjávarvistfræðingur

43. Björk Vilhelmsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrv. borgarfulltrúi

44. Oddný Sturludóttir, menntunarfræðingur og fyrrv. borgarfulltrúi

45. Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri

46. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×