Innlent

Böllin verða víruð, rosaleg, geggjuð

Snorri Másson skrifar
MS-ingarnir Baldvin Þór Hannesson og Breki Freyr Gíslason eru skemmtanafrelsinu fegnir.
MS-ingarnir Baldvin Þór Hannesson og Breki Freyr Gíslason eru skemmtanafrelsinu fegnir. Vísir/Einar

Á meðan segja má að enginn hópur hafi þurft að að súpa seyðið af sóttvarnatakmörkunum svo mjög sem ungmenni undanfarin misseri, er líka hægt að segja að enginn hópur hafi nú endurheimt frelsið með eins ótvíræðum hætti.

Á vef Stjórnarráðsins segir ósköp einfaldlega: Heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.

Hvað er svona það fyrsta sem þið hugsið þegar þið heyrið að öllu verði aflétt hérna hjá ykkur? 

„Skemmtun, held ég að sé það fyrsta sem kemur í höfuðið á öllum. Það er ekki búið að vera mikið af skemmtunum í menntaskólum,“ segir Baldvin Þór Hannesson, ármaður Menntaskólans við Sund.

Breytingarnar gera MS-ingum kleift að halda Landbúnaðarviku með tilheyrandi balli og svo árshátíð, nokkuð sem meiri hluti nemenda í skólanum hefur aldrei kynnst.

„Við nýtum okkur þetta en ég held að við séum ekki að fara að gera allt sem var planað,“ segir Breki Freyr Gíslason, nemi við Menntaskólann við Sund.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur eitthvað borið á því að svonefnd bjórkvöld hafi verið haldin hjá menntaskólanemum undanfarið en því vísa viðmælendur alfarið á bug, enda ekki á vegum skólanna. Það eru böllin þó.

Eftir öll þessi ár, hvernig verður fyrsta ballið? 

„Vírað, held ég. Rosalegt. Vírað, rosalegt, það er ein leið til að orða það. Já, það verður geggjað sko.“

En að sjálfsögðu ógildir ölvun miðann, allir eru mjög þægir er það ekki? 

„Jú.“

MS er þekktur fyrir það? 

„Jú, allir þægir og með bros á vör. Já, alla vega við.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×