Innlent

Bein út­sending: Græna planið og grænar fjár­festingar

Atli Ísleifsson skrifar
Græna plan Reykjavíkurborgar dregur saman helstu lykilverkefni og grænar fjárfestingar áratugarins.
Græna plan Reykjavíkurborgar dregur saman helstu lykilverkefni og grænar fjárfestingar áratugarins. Vísir/Vilhelm

Opinn fundur Reykjavíkurborgar þar sem farið verður yfir græn fjárfestingarverkefni sem miða að því að skapa vistvænni framtíð í borginni verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur milli klukkan 9 og 11 í dag.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilara að neðan, en í tilkynningu segir að þar muni fyrirlesarar fjalla um þau krefjandi verkefni sem Reykjavík standi frammi fyrir til að tryggja græna framtíð og kolefnishlutleysi.

„Á fundinum verður m.a. fjallað um hvaða skref við erum að stíga í átt að kolefnishlutlausri borg, hvernig kraftmikill grænn vöxtur stuðlar að samkeppnishæfni og frjósömu umhverfi fyrir skapandi hugmyndir. Og hvernig tryggjum við að græna umbreytingin byggi á réttlæti, sanngirni og þátttöku íbúa og fyrirtækja?

Græna plan Reykjavíkurborgar dregur saman helstu lykilverkefni og grænar fjárfestingar áratugarins. Þessi framtíðarsýn lýsir borgarsamfélagi sem einkennist af heilnæmu umhverfi, jöfnum tækifærum og öflugu atvinnulífi sem dafnar án þess að ganga á náttúruauðlindir,“ segir í tilkynningunni.

Hægt er að fylgjast með fundinum í spilaranum en fyrir neðan hann má svo sjá dagskrá fundarins og fyrirlesara.

Dagskrá

  • Græna planið - fjárfesting Reykjavíkurborgar og tengdra fyrirtækja í grænni framtíð. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
  • Nýsköpum grænni framtíð. Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups
  • Hvernig borg verður Reykjavík árið 2035? Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte
  • Hringrásargarður á Álfsnesi – samstarf og fjárfestingartækifæri tengt Hringrásarhagkerfinu. Jón Viggó Gunnarsson, framkv.stjóri Sorpu
  • Kaffihlé 5-10 mínútur
  • Undirritun samnings um grænan viðskiptahraðal og þátttöku borgarinnar í frumkvöðlakeppninni Gullegginu. Dagur B. Eggertsson og Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups.
  • Að sýna ábyrgð – Sjálfbær þróun lífeyrissjóða. Ólafur Sigurðsson, framkv.stjóri Birtu lífeyrissjóðs
  • Grænir sprotar á Tæknisetri. Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir, framkvæmdarstjóri Tækniseturs
  • Fjárfestingar einkaaðila í grænum lausnum. Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa
  • Líf Magneudóttir, formaður umhverfis- og heilbrigðisráðs dregur saman umræður fundarins
  • Fundarstjóri: Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×