Bíó og sjónvarp

Ver­búðin frum­sýnd við mikla lukku net­verja

Árni Sæberg skrifar
Verbúðin var frumsýnd í kvöld.
Verbúðin var frumsýnd í kvöld. Skjáskot

Verbúðin, ný þáttaröð úr smiðju Vesturports, var frumsýnd á RÚV í kvöld. Fyrsti þáttur hefur fengið góðar viðtökur landsmanna, ef marka má viðbrögð á netinu. Netverjar virðast sérlega hrifnir af mikilli nekt sem birtist í sjónvarpi allra landsmanna.

Verðbúðin fjallar um vini sem búa vestur á fjörðum og fara í sjávarútvegsbransann árið 1983 þegar kvótakerfið er að verða til.

„Við fylgjum því hvernig þau þróast samhliða því sem kvótkerfið er að festa sig í sessi á árunum 1983 til 1991. Það er tímaspan seríunnar,“ segir Gísli Örn Garðarsson, leikstjóri og einn aðalleikara seríunnar.

Á samfélagsmiðlinum Twitter hefur fólk deilt fyrstu viðbrögðum sínum við þáttaröðinni.

Guðni Halldórsson kvikmyndaklippari hafði sínar efasemdir um að hægt væri að gera gott sjónvarpsefni um kvótakerfið en virðist nú sannfærður.

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður á RÚV, hlakkar til framhaldsins og segir einfaldlega „bravó“.

Björn Teitsson, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins, segir fyrsta þáttinn fá fullt hús í flokknum Íslenskar kvikmyndir og sjónvarpssefni.

Blaðamaður hefur ekki enn séð fyrsta þáttinn, enda í vinnunni, en í honum virðist vera nokkuð mikið um nekt. Það hefur vakið kátínu netverja.

Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri samskipta hjá Landspítala, gefur þættinum fjórar stjörnur af þeim sökum.

Hrafn Jónsson bendir á að fjöldi sýnilegra kynfæra í þættinum minni á einn dáðasta leikara þjóðarinnar.

Fyrsta typpið var ekki lengi að láta sjá sig.

Þó eru ekki allir jafnánægðir með nektina og vara við áhorfi með foreldrum.

Þá vekur athygli hversu dugleg Harpa, leikin af Nínu Dögg Filippusdóttur, er að fara út að hlaupa.

Hér að neðan geta þeir sem ekki hafa gert upp við sig hvort horfa eigi á Verbúðina séð stiklu úr þáttunum:


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×